Janúar
Handverk
Handverk
Frumkvöðullin Ari við wisky verksmiðju á Írlandi (úr myndasafni)

11.01.2008 Janúar

Nýheimar leiða tvö verkefni í Norðurslóðaáætlun Evrópu

Economuseum Northern Europe og NEED, Northern Environment Education Development eiga það sameiginlegt að vera verkefni sem hafa fengið fjárhagslegan stuðning frá Norðurslóðaáætlun Evrópu þar sem Hornfirskir aðilar í Nýheimum eru þátttakendur í og jafnframt leiða verkefnin fyrir íslands hönd. Heildarstyrkur til verkefnana er 260 miljónir þar af er Hornfirski hlutinn 50 miljónir króna. Verkefnið Economuseum Northern Europe er samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Færeyja, Norður Írlands, Írlands og Kanada þar sem heildarverkefniskostnaður verkefnisins er 149,8 milljónir og þar af hlutur Íslands 23 milljónir eða 15,4%. Það eru Fruman í Nýheimum sem leiðir verkefnið og Þekkingarnet Austurlands er samstarfsaðili í verkefninu. Markmið verkefnisins er að hagnýta sér reynslu og þekkingu sem skapast hefur í árangursríku sambærilegu verkefni frá Kanada. Economuseum verkefnið sameinar menningu, handverk og ferðamennsku til að mynda grundvöll fyrir handverksfólk sem nota að stærstum hluta aldagamlar aðferðir til að skapa ný störf. Verkefnið aðstoðar við þróun viðskiptahugmynda, sýningahald ásamt kennslu og þjálfun ungs fólks.

Verkefnið NEED, Northern Environment Education Development er Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands, Noregs og Írlands og eru íslensku þátttakendur fyrir utan Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Nýheimum, Háskólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarstofa Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveitarfélögin Hornafjörður, Skaftárhreppur, Fljótsdalshérað og Norðurþing. Heildarkostnaður þess verkefnis eru 109,8 milljónir. Hlutur Íslands 27 milljónir eða 24,6%
Markmið verkefnisins er að bæta og auka umhverfiskennslu og nýsköpun á sviði fræðandi ferðaþjónustu í samstarfi við tengda aðila með áherslu á jarðfræðisögu, mótun lands og umhverfismál. Með slíkri miðlun er leytast við að hafa áhrif á viðhorf ferðamanna til umhverfis og sjálbærrar nýtingar.

Norðurslóðaáætlunin heyrir undir iðnaðarráðuneyti og Byggðastofnun rekur landsskrifstofu Norðurslóðaáætlunarinnar á Íslandi.

Mikill áhugi á þátttöku í nýrri Norðurslóðaáætlun fyrir árin 2007-2013 ? fjöldi umsókna og breið þátttaka. Ísland tekur þátt í nýrri Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. (Northern Periphery Programme - NPP). Þátttökulöndin auk Íslands eru Finnland, Svíþjóð, Skotland, Norður Írland, Írland, Noregur,Grænland og Færeyjar. Meginmarkmið áætlunarinnar er að stuðla að bættu atvinnu- og efnahagslífi auk eflingar búsetuþátta með fjölþjóða samstarfsverkefnum á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Áhersla er m.a. lögð á að koma í veg fyrir að landamæri þjóðríkja séu hindrun í samstarfi og framþróun byggða og atvinnulífs. Verkefnin innan NPP skapa mikilvæg tengsl og þekkingu sem byggja á alþjóðlegri samvinnu og framtaki.

Þann 19. desember s.l. fjallaði verkefnisstjórn NPP um 19 nýjar umsóknir, 12 verkefni voru samþykkt með skilyrðum og eru íslenskir þátttakendur í fjórum þeirra þar af helmingur í Nýheimum. Heildar-kostnaður verkefna með íslenskum þátttakendum eru 520 milljónir og er íslenski verkefnahlutinn 90 milljónir. Alls bárust 15 forverkefnisumsóknir og þar af voru níu samþykktar . Mikill fjöldi umsókna og breið þátttaka bendir til þess að vel hefur tekist með innleiðingu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013.

Um Economuseum Northern Europe ( hér)
Nánari upplýsingar um Norðurslóðaáætlun Evrópu (hér)  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica