1.520 fermetra reiðhöll við Stekkhól
Nú er allt að verða tilbúið til að hægt verði að hefjast handa við að reisa reiðhöllina við Stekkhól í Nesjum, undirstöður tilbúnar og klæðning hússins á leiðinni og að sögn Kjartans Hreinssonar mun vinna við það hefjast strax og vel viðrar. Húsið sem endanlega varð fyrir valinu er stálgrindarhús klætt samlokueiningum og er heildarstærð þess 1.520 fermetrar. Kjartan vildi ekki spá um verklok við húsið en hann vonast til að hægt verði að fara að nota það svona á vordögunum þó ekki verði allt fullbúið. Verktaki er 37 ehf. en fyrir því stendur Steinar Sigurgeirsson vélstjóri á Hvanney og sér hann um allar framkvæmdir við bygginguna.
Kjartan segir hestamenn hér hafa miklar áhyggjur af tillögu Vegagerðarinnar um val á vegstæði yfir Hornafjarðarfljót. Búið er að teikna veg sem kemur yfir endann á reiðvellinum og verði sú leið fyrir valinu eyðileggur það þetta íþróttamannvirki sem hestamenn hafa lagt mikla vinnu í að byggja upp og eins útreiðarleiðir okkar . Það er því von okkar að Vegagerðin sjái að sér og velji annað vegstæði því þetta svæði er okkur svo mikils virði segir Kjartan að lokum.





Skrifa athugasemd