Reynir hefur fulla trú á samstöðu heimamanna
Eins og fram kom í viðtali við Kjartan Hreinsson hér á fréttavefnum eru hestamenn á Hornafirði mjög óhressir með þá hugmynd Vegagerðarinnar að nýi vegurinn (merkt leið 1) yfir Hornafjarðarfljót þjóðvegur eitt verði lagður yfir enda hesta-íþróttavallarins og eyðileggi þá íþróttaaðstöðu sem þar er búið að byggja upp. Vefurinn hafði samband við Reyni Arnarson formann Bæjarráðs og spurði um hans álit á þessu. Ég get alveg verið Kjartani sammála með þessi ummæli hans um áhrif vegna á lagningu Fljótavegarins verði leið eitt fyrir valinu segir Reynir, mér líst illa á þetta en vil þó bíða með yfirlýsingar þar til eftir fund með Vegagerðinni sem haldinn verður hér í byrjun febrúar. Á þessum fundi ætlar Vegagerðin að opinbera sínar tillögur þó við vitum nokkurn vegin hug þeirra en þeir hafa ,eftir síðasta fund hér, fengið athugasemdir héðan og ég er aðeins að gæla við þá hugmynd að þeir taki eitthvert tillit til þeirra.
Sveitarfélagið hefur síðasta orðið þ.e.a.s. þeir gefa framkvæmdaleyfi til vegalagningarinnar og Reynir hefur fulla trú á samstöðu heimamanna í þessu máli og að hún sé mikils virði þ.a.e. að leið 3 verði fyrir valinu. Taka skal fram að enginn ágreiningur er í Bæjarstjórn Hornafjarðar um að leið 3 verði valin.
Athugasemdaferli fer í gang eftir þennan fund í febrúar og þá hafa allir bæði á fundinum og eftir hann tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri.





Skrifa athugasemd