Febrúar
Flugfélagið Ernir bætir við þriðjudagsflugi til Hafnar
Frá því Ernir tóku við flugi á Höfn hefur farþegastraumur aukist mikið. Vegna þessarar aukningar hefur verið tekin sú ákvörðun að bæta við flugi á þriðjudögum, en ekki hefur verið flogið áður þá daga. Um er að ræða hádegisflug á þriðjudögum yfir veturinn og síðan verður flogið að morgni og á kvöldin yfir sumarið. Þessar breytingar taka í gildi 19. febrúar og verður þá flogið hvern einasta virka dag og á sunnudögum hingað til Hafnar.
Sjá flugáætlun





Skrifa athugasemd