Febrúar
Grásleppuveiðar
Grásleppuveiðar
Á grásleppuveiðum með einn myndalegan steinbít, hvor er sætari? (valið úr myndasafni)

04.02.2008 Febrúar

Gott atvinnuástand í Sveitarfélaginu

Mikill áhugi er núna í Hornfirðingum að efla og auka atvinnutækifæri í sveitarfélaginu og er mikill hugur í bæjarstjórn og bæjarstjóra að þar skuli taka á málum af krafti. Nýja árið byrjar vel hvað framkvæmdir í sveitarfélaginu varða og eru nýbyggingar bæði á Höfn og í sveitunum og ekki er að heyra annað en fólk sé bjartsýnt á framtíðina og að það ætlar ekki að sitja og bíða þess að tækifærin komi kannski einhvern tíman heldur finna þau og virkja. Atvinnuástand á Hornafirði á síðasta ári var gott og atvinna jöfn samkvænt upplýsingum frá Svæðismiðlun Vinnumálastofnunar Austurlands og núna eru aðeins 11 manns á atvinnuleysisskrá 3 konur og 8 karlar. Er þetta mun lægri tala en oft hefur verið á þessum árstíma.

Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunarinnar er greinilegt að kvótaskerðingin hefur mikið meiri áhrif á þessu svæði en menn gera sér grein fyrir og hefur atvinnuleysi á Austurlandi mikið aukist undanfarnar vikur og gjörbreyting orðið í atvinnulífinu.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica