Opin vika í FAS og útvarp FM 105,7
Þessa viku fer fram opin vika í FAS. Þá verður hefðbundin kennsla fellt niður og nemendur kljást við önnur verkefni. Í morgun var fóru nemendur í ratleik. Eftir hádegi vinna nemendur svo í hópum. Framhaldsskólinn verður með útvarpshóp sem mun sjá um útvarpsútsendingu á meðan á opinni viku stendur, sent er út á FM 105,7. Einnig verður fengist við í opinni viku: Hornafjarðarmanni, heimsókn í VA, fótboltamót og svo hápunktur vikunnar árshátíðin sem verður föstudaginn 22. febrúar. Hópar sem nemendur hafa valið eru auk árshátíðarhóps, útvarpshópur, blaðahópur, tónlistarhópur, ljósmyndahópur, kvikmyndahópur og svo er einn hópur sem ætlar að nota vikuna til að undirbúa atriði FAS í söngvakeppni framhaldsskólanna.
Til að opin vika takist sem best er mikilvægt að allir mæti alltaf og hafi GAMAN SAMAN!





Skrifa athugasemd