Þórey kosin formaður Búnaðarsambands A-skaft.
Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu kaus nýjan formann fyrir helgina og að þessu sinni ríkti jafnrétti kynjanna því við embættinu tók Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur og starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands. Með henni í stjórn eru Steinþór Torfason á Hala og Guðjón Þorsteinsson á Svínafelli í Öræfum, fráfarandi formaður er Bjarni Hákonarson í Dilksnesi. Þetta breytir ekki neinu mínu starfi segir Þórey, þetta eru bara félagasambönd bænda í sýslunni og sjá um rekstur búnaðarsambandsins hér eins að halda uppi góðu samstarfi við Búnaðarsamband Suðurlands sem við erum hluti af.
Aðalstarfssvið Þóreyjar er allt sem snýr að sauðfjárrækt í sýslunni. Árið 2006 var ásett fé á vetrarfóðrun sautján þúsund kindur hjá 45 fjáreigendum þ.e. þeir sem áttu fleiri en 10 kindur. Flest var fé í Nesjum rúmlega fimm þúsund fjár. Ekki eru komnar heildar fjártölur fyrir síðasta ár. Þórey hefur starfað hjá Búnaðarsambandinu frá 22.ágúst 2006.





Skrifa athugasemd