Febrúar
Hornafjardarmanni_FAS
Hornafjardarmanni_FAS
Vinningshafar í Hornafjarðarmanna í FAS Hörður Þórhallsson (3), Eik Aradóttir (1) Hanna Guðrún Kolbeins (2) (Mynd FAS)

19.02.2008 Febrúar

Ratleikur í gær - Hornafjarðarmanni í dag

Opin vika í FAS hófst í gær með ratleik. Fimm stöðvar voru vítt og breitt um bæinn og röltu nemendur á milli þeirra. Á hverri stöð þurfti að leysa ýmsar þrautir og fengu hóparnir stig eftir því hvernig til tókst. Það var til mikils að vinna því sigurvegarnir í ratleiknum fengu miða á borðhaldið á árshátíðinni sem verður næsta föstudag. Í morgun var svo spilaður Hornafjarðarmanni. Í fyrstu umferð spiluðu tæplega fjórir tugir manna. Hefðbundnum reglum í Hornafjarðarmanna var fylgt. Spiluð voru 27 manna úrslit, síðan undanúrslit sem níu manns tóku þátt í og svo úrslitin sjálf. Það voru þau Eik, Hanna og Hörður sem náðu alla leið í úrslitin og þegar staðið var upp frá úrslitaspilinu kom það í ljós að Eik Aradóttir er Framhaldsskólameistari í Hornafjarðarmanna árið 2008. Í öðru sæti var Hanna Guðrún Kolbeins og Hörður Þórhallsson varð í þriðja sæti.

Öll hlutu þau verðlaun frá Hótel Höfn. Við óskum nýjum Framhaldsskólameistara til hamingju með titilinn.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica