Febrúar
hesta_Picture_070
hesta_Picture_070
Verðlaunahafar í b flokki Hanni Heiler, Marteinn Gíslason, Lena Hrönn Marteinsdóttir (Mynd:Hornfirðingur)
Mynd 1 af 2
1 2

20.02.2008 Febrúar

Fyrstu vetrarleikar Hornfirðings

Um síðustu helgi fóru fram fyrstu vetrarleikar Hornfirðings þ.e. sunnudaginn 17. febrúar og fóru þeir fram í góðu veðri. Keppnin fór fram á veginum við Stekkhól þar sem að veðrátta síðustu daga leyfði i ekki notkun á keppnisvellinum vegna bleytu. Dómarar voru Friðrik Reynisson og Eyjólfur Kristjónsson Keppt var í Barnaflokki, unglingaflokki, áhugamannaflokki og opnum flokki. Einnig var keppt í B flokki. Kristján V Björgvinsson fékk viðurkenningu fyrir skemmtileg tilþrif.


Úrslit

Barnaflokkur: Heiðdís Anna Marteinsdóttir á Fríðu frá Lambleiksstöðum

Unglingaflokkur:
1. sæti: Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Nótt frá Sauðárkróki.
2. sæti:Gunnar Ásgeirsson á Snorra goða frá Feti
3. sæti: Heiða Jóhanna Pálmadóttir á Gylfagynningu frá Oddhól.

Opinn flokkur:
1.sæti: Marteinn Gíslason á Þyrnrós frá Ártúni
2. sæti: Hanni Heiler á Hring frá Skjólbrekku
3. sæti:Birna Sólveig Kristjónsdóttir á Óðni frá Árnanesi

Áhugamannaflokkur:
1. sæti: Gunnar Ásgeirsson á Kyndli frá Skarði
2. sæti Heiða Jóhanna Pálmadóttir á Rúbín frá Nautabúi
3. sæti. Jóna Stína Bjarnadóttir á Geisla frá Fornustekkum

B flokkur
1.sæti: Hanni Heiler á Hring frá Skjólbrekku
2.sæti: Lena Hrönn Marteinsdóttir á Mózart frá Ártúni
3.sæti:Marteinn Gíslason á Bjarma frá Ártúni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica