Heimsókn FAS í Verkmenntaskóla Austurlands
Í gær var farið í heimsókn í VA en þar voru haldnir Ólympíuleikar Austurlands með þátttöku ME, VA og FAS. Lagt var af stað uppúr 9 og fór full rúta eða vel yfir 40 manns austur. Keppt var í mörgum íþróttagreinum s.s. fótbolta, brennibolta, bandí, reiptogi og troðslu. Einnig var dvergakast sem felst í því að kasta léttri manneskju yfir hástökkssúlu. Keppnin stóð í nokkra tíma og þegar uppi var staðið endaði FAS í þriðja sæti. Í sumum greinum sýndi FAS þó ótrúleg tilþrif eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Eftir pítsuveislu í Egilsbúð var haldið heim á leið og kom hópurinn til baka í gærkveldi. Það er mál manna að ferðin hafi verið einstaklega vel lukkuð og komu ferðalangarnir alsælir heim. Fararstjóri var Vilhjálmur dönskukennari og notaði hann tækifærið til að auka orðaforða nemenda. Fleiri myndir úr ferðinni má sjá hér
www.fas.is





Skrifa athugasemd