Fjölmennur fundur um vegstæði um Hornafjörð
Fundur Vegagerðarinnar með íbúum á Hornafirði vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót fór fram í Nýheimum í gærkvöldi. Erna Hreinsdóttir verkefnastjóri hjá Vegagerðinni útskýrði mat á umhverfisáhrifum á þeim þrem leiðum sem til skoðunar eru þ.e. leið 1, leið 2 og leið 3 og mælir Vegagerðin með að leið 1 verði valin. Vegagerðin segir að leið 1 sé ódýrust þessara þriggja og hefur minnst umhverfisáhrif í för með sér. Því næst voru fyrirspurnir fundargesta og álit þeirra á fyrirhuguðum vegstæðum og var Auður Magnúsdóttir hjá VSÓ Ráðgjöf fyrir svörum. Algjör einhugur var hjá öllum þeim sem til máls tóku um að ekki kæmi til greina önnur leið en leið 3 og lagði hver og einn fram rök fyrir máli sínu og fóru menn eindregið fram á að Vegagerðin samþykkti stystu, beinustu og öruggustu leiðina sem er leið 3. Myndir og kort af vegstæðum og umhverfi þeirra voru til sýnis á bókasafninu og í kaffistofunni og þar gafst mönnum tækifæri að ræða við starfsmenn Vegagerðarinnar og VSÓ.
Árni Rúnar Þorvaldsson sagði að bæjarstjórn myndi gera allt sem hægt er til að leið 3 verði valin og þar er einhugur um valið.
Fundinn sóttu um 100 manns. Auður Magnúsdóttir hvetur alla sem eitthvað hafa til þessara mála að leggja að senda póst á netfangið jakob@skipulag.is og segja sitt álit og þarf það að vera komið fyrir 8. mars nk.





Skrifa athugasemd