Febrúar
Kólesterólmæling
Kólesterólmæling
Ari Þorsteinsson mætti stoltur á Heilsugæslustöðina þar sem Ester Þorvaldsdóttir mældi hjá honum kólesterólmagnið (úr myndasafni).

27.02.2008 Febrúar

Málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni haldið í Nýheimum

Í undirbúningi er málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni (í dreifbýli) (rural medicine) í Nýheimum og fer það fram 3. apríl n.k. Markmið málþingsins er að draga fram þær aðstæður sem heilbrigðisstarfsmenn á landsbyggðinni vinna við. Heilbrigðisráðherra ávarpar þingið, landlæknir fjallar um málaflokkinn og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis mun taka saman niðurstöður í lok þingsins. Einnig munu fulltrúar heilbrigðistétta á landsbyggðinni segja frá sínu sjónarhorni hvert á sínum starfsvettvangi. Athygli er vakin á að það er Flugfélagið Ernir sem hafa með höndum flug á Hornafjörð og er flogið að morgni fimmtud. frá Reykjavík kl. 7:30 og frá Hornafirði kl.. 17.30.

Áætlað er að Málþingið hefst kl. 09:30 og áætlað að því ljúki kl. 16:00.

Hægt er að skrá sig á málþingið á eftirtalið netfang: olafia@hornafjordur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica