Sveitarfélagið Hornafjörður - Febrúar
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
FAS fékk bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu
      <description>Í dag fékk FAS bókagjöf frá kínverksa sendiráðinu. Þetta eru allt bækur á ensku sem fjalla um Kína og menningu landins, alls um tuttugu bækur. Gjöfin kemur í kjölfarið á samskiptum sem Vilhjálmur Gíslason hefur staðið fyrir af hálfu skólans við sendiráðið. Undanfarna daga hefur verið hér í heimsókn Tao (hún fékk íslenska nafnið Sunna) frá gömlu höfuðborg Kína, Nanging. Hún ferðaðist víða um og ræddi við menn, m.a. um ferðamál og hugsanleg ferðalög Kínverja til Íslands. Í gær voru Tao og Vilhjálmur á fundi í kínverska sendiráðinu þar sem hún lýsti því sem á daga hennar hafði drifið. Þar á bæ huga menn á ferð hingað austur á næstunni til að skoða aðstæður.</description>
Málþing um heilbrigðismál á landsbyggðinni haldið í Nýheimum
      <description>Í undirbúningi er málþing um heilbrigðismál  á landsbyggðinni (í dreifbýli) (rural medicine) í Nýheimum og fer það fram  3. apríl n.k. Markmið málþingsins er að draga fram þær aðstæður sem heilbrigðisstarfsmenn  á landsbyggðinni vinna  við. Heilbrigðisráðherra ávarpar þingið, landlæknir fjallar um málaflokkinn og formaður heilbrigðisnefndar Alþingis mun taka saman niðurstöður í lok þingsins.  Einnig munu fulltrúar heilbrigðistétta á landsbyggðinni segja frá sínu sjónarhorni hvert á sínum starfsvettvangi.  Athygli er vakin á að það er Flugfélagið Ernir sem hafa með höndum flug á Hornafjörð og er flogið að morgni fimmtud. frá Reykjavík kl. 7:30 og frá Hornafirði kl.. 17.30.</description>
Fjölmennur fundur um vegstæði um Hornafjörð
      <description>Fundur Vegagerðarinnar með íbúum á Hornafirði vegna vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót fór fram í Nýheimum í gærkvöldi. Erna Hreinsdóttir verkefnastjóri hjá Vegagerðinni útskýrði mat á umhverfisáhrifum á þeim þrem leiðum sem til skoðunar eru þ.e. leið 1, leið 2 og leið 3 og mælir Vegagerðin með að leið 1 verði valin. Vegagerðin segir að leið 1 sé ódýrust þessara þriggja og hefur minnst umhverfisáhrif í för með sér. Því næst voru fyrirspurnir fundargesta og álit þeirra á fyrirhuguðum vegstæðum og var Auður Magnúsdóttir hjá VSÓ Ráðgjöf fyrir svörum. Algjör einhugur var hjá öllum þeim sem til máls tóku um að ekki kæmi til greina önnur leið en leið 3 og lagði hver og einn fram rök fyrir máli sínu og fóru menn eindregið fram á að Vegagerðin samþykkti stystu, beinustu og öruggustu leiðina sem er leið 3. Myndir og kort af vegstæðum og umhverfi þeirra voru til sýnis á bókasafninu og í kaffistofunni og þar gafst mönnum tækifæri að ræða við starfsmenn Vegagerðarinnar og VSÓ.</description>
27 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs
      <description>Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs rann út mánudaginn 18. febrúar og sóttu  27 um starfið. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfisráðherra. Með stjórn stofnunarinnar og umsjón með rekstri þjóðgarðsins fer sérstök stjórn skipuð af ráðherra. Vatnajökulsþjóðgarður, stærsti þjóðgarður Evrópu, verður stofnaður seint á þessu ári eða í upphafi þess næsta. Stefnt er að því að þjóðgarðurinn verði um 15.000 km² að stærð, eða um 15% af flatarmáli Íslands, og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum, m.a. vegna þess að þar eru átök elds og ísa enn í fullum gangi.</description>
FAS meistarar í fótbolta
      <description>Í morgun fór fram fótboltamót í FAS en það er einn liður í opinni viku. Margir þekktir kappar mættu og sýndu hreint ótrúleg tilþrif á vellinum. En það mættu líka nokkrir sem eru þekktari fyrir annað en tuðruspark. Öll liðin þurftu að keppa innbyrðis og stóð hver leikur yfir í 12 mínútur eða sex mínútur á hálfleik. Í leikslok voru það þau Ásta Steinunn, Haukur, Jóhann Bergur og Ragnar Ingi sem stóðu uppi sem sigurvegarar og hljóta þau sæmdarheitið FAS meistarar í fótbolta. Þau fá einnig verðlaunapeninga fyrir frammistöðuna.</description>
Nýsköpun í ferðaþjónustu: Hagnýt dæmi frá jaðarsvæðum
      <description>Mánudaginn 25. febrúar n.k. flytur John S. Hull, doktor í ferðamálafræði, fyrirlestur á vegum Háskólasetursin á Hornafirði og Ferðamálaseturs Íslands um nýsköpun í ferðaþjónustu á jaðarsvæðum. Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Nýheimum og hefst kl. 17:00. Að erindinu loknu verða almennar umræður um efni þess þar sem Dr. Hull mun svara fyrirspurnum viðstaddra.  John Hull nam upphaflega umhverfis- og skipulagsfræði en snéri sér síðan að ferðamálum og gerði doktorsrannsókn um sjálfbærni ferðaþjónustu á norðurslóðum sem hann lauk árið 1998. John hefur síðan unnið að fjölda verkefna í heimalandi sínu Kanada (einkum í Nýfundnalandi, Labrador og Québec), í Mið-Austurlöndum og í Afríku. Hann hefur einnig verið þátttakandi eða ráðgjafa í nokkrum norrænum verkefnum sem Íslendingar hafa átt aðild að og þannig öðlast góða þekkingu á ferðaþjónustumálum hérlendis.</description>
Heimsókn FAS í Verkmenntaskóla Austurlands
      <description>Í gær var farið í heimsókn í VA en þar voru haldnir Ólympíuleikar Austurlands með þátttöku ME, VA og FAS. Lagt var af stað uppúr 9 og fór full rúta eða vel yfir 40 manns austur. Keppt var í mörgum íþróttagreinum s.s. fótbolta, brennibolta, bandí, reiptogi og troðslu. Einnig var dvergakast sem felst í því að kasta léttri manneskju yfir hástökkssúlu. Keppnin stóð í nokkra tíma og þegar uppi var staðið endaði FAS í þriðja sæti. Í sumum greinum sýndi FAS þó ótrúleg tilþrif eins og sést á meðfylgjandi mynd.</description>
Flugvél í sjóinn fyrir austan land
      <description>Í dag um klukkan 11:30 bárust boð um að eins hreyfils flugvél hefði misst afl og horfið af ratsjá um 130 sjómílur suðsuðaustur af Hornafirði.  Þyrla og Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út.  Skipum á svæðinu hefur verið tilkynnt um slysið og beðin að svipast um.  Varðskip er á leið á staðinn.  Upplýsingar um þjóðerni liggja ekki fyrir. Vélin er skráð í Bandaríkjunum af gerðinni Piper PA28 og var með einn mann innanborðs.  Vélin hvarf af ratsjá 19 mínútur yfir ellefu í morgun en þá var hún um 120 sjómílur suðaustur af landinu eða um 240 sjómílur suðaustur af Keflavík.</description>
      <alt>Piper PA28</alt>
Fyrstu vetrarleikar Hornfirðings
      <description>Um síðustu helgi fóru fram fyrstu vetrarleikar Hornfirðings þ.e. sunnudaginn 17. febrúar og fóru þeir fram í góðu veðri. Keppnin fór fram á veginum við Stekkhól þar sem að veðrátta síðustu daga leyfði i ekki notkun á keppnisvellinum vegna bleytu. Dómarar voru Friðrik Reynisson og Eyjólfur Kristjónsson Keppt var í Barnaflokki, unglingaflokki, áhugamannaflokki og opnum flokki. Einnig var keppt í B flokki. Kristján V Björgvinsson fékk viðurkenningu fyrir skemmtileg tilþrif.</description>
Vegagerðinni send umsögn vegna heilsársvegar um Öxi
      <description>Bæjarstjóri Hornafjarðar fyrir hönd sveitarfélagsins hefur sent Vegagerðinni umsögn um heilsársveg um Öxi en í því bréfi kemur fram eftirfarandi  1. Umhverfi og náttúra framkvæmdasvæðis: Undirritaður telur að nýtt vegstæði hafi lítil sem engin áhrif á svæðið, hvorki sjónrænt né vegna landslagsáhrifa og lífríkis.  Núverandi vegstæði heldur sig að mestu og áhrifin verða því minniháttar.  Nú þegar er mikil umferð um Öxi og því mikilvægt að tryggja sem mest öryggi þeirra sem leið eiga þar um.  Beitilönd verða ekki fyrir áhrifum enda liggur leiðin að stærstum hluta um urðir og ógróin lönd.  Framkvæmdin mun því að mati undirritaðs ekki hafa nein áhrif á dýralíf á svæðinu og eða raska öðrum náttúrulegum gæðum þess.</description>
Mokafli hjá línubátum
      <description>Mokafli er  hjá línubátum sem róa frá Hornafirði afli 5-10 tonn í róðri. Unnsteinn Þráinsson á línubátnum Sigga Bessa segir stutt að fara á veiðisvæðið það sé hér rétt fyrir utan. Mest af aflanum er stór og góð ýsa en sáralítið sést af þorski og er það vissulega áhyggjuefni, þó lítið megi veiða af honum. Ýsan fer að mestu á fiskmarkað.  Unnsteinn segir að gott verð hafi fengist fyrir ýsuna í vetur, verðið á henni ræðst mikið af  veðráttunni  og hversu oft gefur á sjó  það er fljótt að hækka þegar brælurnar koma og það hefur ekki verið neinn skortur á þeim í vetur. Það sem við veiðum af þorski fer til vinnslu í Bestfiski.</description>
Ratleikur í gær - Hornafjarðarmanni í dag
      <description>Opin vika í FAS hófst í gær með ratleik. Fimm stöðvar voru vítt og breitt um bæinn og röltu nemendur á milli þeirra. Á hverri stöð þurfti að leysa ýmsar þrautir og fengu hóparnir stig eftir því hvernig til tókst. Það var til mikils að vinna því sigurvegarnir í ratleiknum fengu miða á borðhaldið á árshátíðinni sem verður næsta föstudag. Í morgun var svo spilaður Hornafjarðarmanni. Í fyrstu umferð spiluðu tæplega fjórir tugir manna. Hefðbundnum reglum í Hornafjarðarmanna var fylgt. Spiluð voru 27 manna úrslit, síðan undanúrslit sem níu manns tóku þátt í og svo úrslitin sjálf. Það voru þau Eik, Hanna og Hörður sem náðu alla leið í úrslitin og þegar staðið var upp frá úrslitaspilinu kom það í ljós að Eik Aradóttir er Framhaldsskólameistari í Hornafjarðarmanna árið 2008. Í öðru sæti var Hanna Guðrún Kolbeins og Hörður Þórhallsson varð í þriðja sæti.</description>
Þórey kosin formaður Búnaðarsambands A-skaft.
      <description>Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu kaus nýjan formann fyrir helgina  og að þessu sinni ríkti jafnrétti kynjanna því við embættinu tók Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur og starfsmaður Búnaðarsambands Suðurlands. Með henni í stjórn eru  Steinþór Torfason á Hala og Guðjón Þorsteinsson  á Svínafelli í Öræfum, fráfarandi formaður er Bjarni Hákonarson í Dilksnesi. Þetta breytir ekki neinu mínu starfi segir Þórey, þetta eru bara félagasambönd bænda í sýslunni og sjá um rekstur búnaðarsambandsins hér eins að halda uppi góðu samstarfi við Búnaðarsamband  Suðurlands sem við erum hluti af.</description>
      <alt>Þórey Bjarnadóttir sauðfjárræktarráðunautur</alt>
Opin vika í FAS og útvarp FM 105,7
      <description>Þessa viku fer fram opin vika í FAS. Þá verður hefðbundin kennsla fellt niður og nemendur kljást við önnur verkefni. Í morgun var fóru nemendur í ratleik. Eftir hádegi vinna nemendur svo í hópum. Framhaldsskólinn verður með útvarpshóp sem mun sjá um útvarpsútsendingu á meðan á opinni viku stendur, sent er út á FM 105,7. Einnig verður fengist við í opinni viku: Hornafjarðarmanni, heimsókn í VA, fótboltamót og svo hápunktur vikunnar árshátíðin sem verður föstudaginn 22. febrúar. Hópar sem nemendur hafa valið eru auk árshátíðarhóps, útvarpshópur, blaðahópur, tónlistarhópur, ljósmyndahópur, kvikmyndahópur og svo er einn hópur sem ætlar að nota vikuna til að undirbúa atriði FAS í söngvakeppni framhaldsskólanna.</description>
Loðnan farin að ganga á grunnið
      <description>Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá allgóðan afla. Hafrannsóknaskip er komið á svæðið og eru vonir bundnar við að fiskifræðingum takist að mæla stofninn á næstu dögum, að því er fram kemur á Visir.is</description>
Fóður og fjör á Hótel Höfn
      <description>Hátíðin Fóður og fjör eða Food & Fun verður haldin um allt land helgina 21. til 24. febrúar næstkomandi. Hótel og veitingahús í öllum landsfjórðungum hafa tekið sig saman með þetta skemmtilega verkefni á landsbyggðinni, verða með sérstök tilboð á mat og gistingu og lofa frábærri lífsstílshátíð sem lífga mun upp á skammdegið. Hótel Höfn mun að sjálfsögðu taka þátt í fjörinu og bjóða upp á sérstakan matseðil næstu helgi.</description>
Björgunarfélagið fær tvo nýja snjósleða
      <description>Björgunarfélag Hornafjarðar hefur keypt 2 nýja snjósleða af gerðinni Lynx  800 X strim  150 hestöfl. Sleðarnir eru vel búnir björgunartækjum ss. VHS talstöð, GPS tæki og nauðsynlegum sjúkrabúnaði. Haukur Sveinbjörnsson umboðsmaður Ellingsen á Höfn afhenti Björgunarsveitinni sleðana í dag,föstudag.  Við vorum að endurnýja tvo sleða af fjórum sem sveitin á  segir Jónas Friðriksson formaður  Björgunarfélagsins, þetta eru nettari, léttari og kraftmeiri tæki en þeir gömlu. Við fengum mjög góða fyrirgreiðslu og góðan afslátt hjá umboðsaðilanum sem er Ellingsen og einnig að fá sleðana afhenta hér sparaði okkur líka útgjöld. Björgunarsveitin er vel búin tækjum og á auk þessara nýju sleða 2 stóra snjósleða og 3 bíla sem allt eru nýleg tæki.</description>
Starfsmenn og heimilisfólk á Hjúkrunardeild Skjólgarðs héldu sitt Þorrablót í dag
      <description>Hefðbundinn Þorramatur var á borðum í hádeginu og kl. 15 var skemmtidagskrá. Þorbjörg Helgadóttir bað  Hrein Eiríksson að sjá um að kynningu á skemmtiatriðum og einnig  las hann stutta gamansögu, kvennakórinn söng nokkur lög , Guðbjartur Össurarson las frumsamin ljóð sem vöktu mikla ánægju viðstaddra enda maðurinn sérstaklega hagmæltur. Séra Sigurður Kr. Sigurðsson  stjórnaði  almennum söng við góðar undirtektir viðstaddra og undirleik annaðist  Kristín kona hans.</description>
Þetta verður ekki bara stór þjóðgarður heldur líka einstakur
      <description>Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir kom í heimsókn til Hornafjarðar í dag ásamt Önnu Kr. Ólafsdóttur aðstoðarmanni ráðherra sem jafnframt er formaður yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Fréttamaður vefsins hafði tal af  ráðherra  þar sem hann var að skoða Jöklasýninguna ásamt aðstoðarmanni sínum og bæjarstjórnarmönnum, og spurði hvað umhverfisráðherra finnist um staðinn og það sem verið er að gera hér. Mér líst vel á það sem ég hef skoðað  hér, segir ráðherra, ég er búin að funda með bæjarstjórn, fara í Nýheima og skoða Jöklasýninguna. Við höfum rætt mikið um Vatnajökulsþjóðgarð og ég hef líst því yfir við bæjarstjórn að ég er mjög ánægð með það hvernig Hornfirðingar hafa tekið á uppbyggingu þjóðgarðsins og mér finnst andinn hér mjög jákvæður.</description>
Norðurljósablús 29. febrúar til 2. mars næstkomandi
      <description>Þrjú erlend og sex íslensk blúsbönd koma fram á Blúshátíðinni Norðurljósablús 2008 verður haldin í þriðja sinn hér dagana 29. febrúar til 2. mars næstkomandi. Að þessu sinni var ákveðið að gefa ungu íslenski blústónlistarfólki tækifæri til að koma fram og jafnframt að kynna tónlistarmenn frá norðurlöndunum fyrir landsmönnum. Þrjár sveitir að utan í ár. Øernes blues band frá Danmörku, Street Cowboys frá Smálöndunum í Svíþjóð og síðast en ekki síst Emil & the Ecstatics frá Svíþjóð. Þeir síðastnefndu voru aðal gestir Norðurljósablúss 2006 og gerðu gríðarlega lukku. Þá ættu Hornfirðingar að kannast við svipinn á trommuleikaranum í sænsku sveitinni Higgins and the Lowdowns því það er enginn annar en Ólafur Karl Karlsson frá Móhóli.</description>
      <alt>Norðurljósablús</alt>
Nemandi í Grunnskólanum í Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni
      <description>Lydía Angelíka Guðmundsdóttir í Grunnskólanum Hofgarði hlaut þriðju verðlaun í ritgerðarsamkeppni sem samtökin Vinir landsbyggðarinnar standa fyrir. Samkeppnin er meðal valinna skóla ár hvert og hefur það að markmiði að hvetja unglinga til að leggja fram hugmyndir um hvernig samfélagi þau vilja búa í og hvað þau geta gert fyrir heimabyggðina. Verðlaunin voru afhent af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í Norræna húsinu s.l. mánudag. Tveir skólar úr hverjum landshluta taka þátt í keppninni. Um 400 ritgerðir voru skrifaðar af nemendum í 8.–10. bekk en 21 var valin fyrir dómnefnd. Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni eru hluti af samtökunum Landsbyggðin lifir.</description>
Slökkvilið veitti viðurkenningu og verðlaun fyrir þátttöku í eldvarnagetraun
      <description>Í morgun fékk Slökkvilið Hornafjarðar heimsókn frá átta ára krökkum úr Nesjaskóla en þau komu þangað í fylgd með kennurum sínum. Tilefni heimsóknarinnar var að taka á móti verðlaunum fyrir þátttöku þeirra í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Nöfn 34 barna víðs vegar af landinu voru dregin úr innsendum lausnum. Eitt nafn kom úr þessum potti og er hann nemandi í Nesjaskóla og heitir Ágúst Máni Aðalsteinsson, í vinning hlaut hann viðurkenningarskjal Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með árituðu nafni, reyksskynjara, forvarnablað og SONY MP3 spilara. Slökkviliðsmenn óskuðu Ágústi til hamingju, og hans bekkjarfélögum fyrir samviskusamlega úrvinnslu á þessari getraun.</description>
Öflug leikstarfsemi á Hornafirði
      <description>Þegar vefurinn hafði samband við Magnús J. Magnússon fyrir helgina og spurði hann frétta af leiklistarlífinu á staðnum og hvaða stórsýning yrði fyrir valinu sagði hann þetta allt koma í ljós eftir helgina. Nú er komið í ljós að fyrir valinu varð Rocky Horror Picture Show sem Jón Ingi Hákonarson leikstýrir og verður nánar sagt frá því hér á vefnum síðar. Leikstarfsemi hefur löngum verið öflug á Hornafirði og einkum hjá unglingum eftir að kennarinn Magnús J. Magnússon flutti til Hornafjarðar 1993. Magnús stofnaði þá leikhópinn Lopa með unglingunum og á þessum 15 árum hafa frumsýningar hjá leikhópnum Lopa verið 20 þar af hefur Magnús samið handrit fyrir 15 þeirra sýninga.</description>
Sveitarfélagið Hornafjörður með hæstu einkunargjöf af landsbyggðarsveitarfélögum
      <description>Samkvæmt úttekt Vísbendingar vikurits um viðskipti og efnahagsmál, á fjárhagslegum mælikvörðum fær Sveitarfélagið Hornafjörður hæstu einkunn af landsbyggðarsveitarfélögum með einkunnagjöfina 6,8 og er í fjórða sæti ef með eru talin yfir sveitarfélögin Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær. Árið 2006 var Sveitarfélagið Hornafjörður í 10 sæti en hefur nú hækkað sig upp í 4 sætið. Til hamingju Hornafjörður! Í frétt frá Vísbendingu kemur áfram að þrjú sveitarfélög eru með einkunn yfir 7,0. Það eru annars vegar Garðabær með meðaleinkunnina 8,3, Seltjarnarnes með einkunnina 7,3 og Mosfellsbær með 7,0. Efstu tvö sveitarfélögin eru þau sömu og í fyrra. Seltjarnarnes lækkar í einkunn vegna hás veltufjárhlutfalls og þess hve rekstrarafkoman er hátt hlutfall af tekjum. Ef reiknað er með því að þetta sé tímabundið ástand má segja að staða Seltjarnarness sé afar góð.</description>
      <alt>Höfn</alt>
Framtíð nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs á Suðausturlandi
      <description>Á fundi bæjarráðs í gær kom fram hjá Hjalta Þór Vignissyni bæjarstjóra að verið er að skoða þann möguleika að Nýsköpunarmiðstöð Íslands taki yfir starfsemi Frumkvöðlaseturs Austurlands. Á fundinum lagði Hjalti Þór fram minnispunkta um málið í framhaldi af komu forstjóra og framkvæmdarstjóra Nýsköpunarmiðstöðvarinnar (NMI) til Hafnar í lok janúar og frá heimsókn þeirra Ara Þorsteinssonar framkvæmdarstjóra Frumkvöðlasetursins til NMI í Reykjavík. Í minnispunktunum kemur fram að með mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar var NMI falið að stofna til starfsemi á Höfn í Hornafirði.  Fyrir var Frumkvöðlasetur Austurlands með starfsemi og hafði náð mikilsverðum árangri á sínu starfsviðið. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar leiddi til þess að móta þurfti stefnu i nýsköpunar- og frumkvöðlastarfi í Sveitarfélaginu Hornafirði til framtíðar.</description>
112-dagurinn er í dag, 11. febrúar
      <description>112 dagurinn er í dag, 11. febrúar, en tilgangur hans er að minna á neyðarnúmerið og það víðtæka net björgunaraðila sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Um 12 fóru viðbragðsaðilar einn hring um höfn með bíla sína til að minna á mikilvægi þessa dags. Auk þess er unnt að hafa samband við barnaverndaryfirvöld um allt land í gegnum neyðarnúmerið, 112. Neyðarlínunni bárust um 266 þúsund neyðarsímtöl á síðasta ári og var í langflestum tilvikum beðið um aðstoð lögreglu og slökkviliða. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flytur ávarp og Lögreglukórinn tekur nokkur lög fyrir gesti. 112-dagurinn er nú haldinn hér á landi í fjórða sinn.</description>
Heddi Frændi kominn á flot
      <description>Heddi Frændi kominn á flot aftur og kominn á sinn stað við Óslandsbryggjuna. Vignir Júlíusson sagði að vel hefði gengið að ná Hedda upp úr sjónum.  Þegar búið var að dæla sjó úr bátnum var tiltölulega auðvelt að koma honum á réttan kjöl með aðstoð frá Birni Lóðs. Ljóst er að Heddi  Frændi verður ekki gerður út framar, aftur á móti er óljóst hvernig hægt verður að farga honum. Best væri ef eitthvert sjóminjasafn vildi fá hann því hann á ábyggilega merkilega útgerðarsögu ekki síður en önnur fiskiskip.
|nl|</description>
Búið að panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina
      <description>Þó ekki sjáist ennþá mikið af nýju sundlaugarbyggingunni er farið að huga að þeim búnaði sem settur verður þar upp. Búið er að velja og panta þrjú leiktæki til notkunar í vaðlaugina en einhverja mánuði tekur að fá þau á staðinn. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri  tækni og umhverfissviðs segir að verið sé að skoða hvernig rennibraut verði fyrir valinu og hversu há og stór hún verði. Nefndin sem sér um íþróttamannvirki á staðnum er sammála um að velja rennibraut sem er sambærileg og er í Kópavogi en sú rennibraut er opin 5,5 m. á hæð og grá að lit.</description>
Hreindýrum fjölgar í Nesjum
      <description>Hreindýrahjarðir eru óneytanlega augnayndi  og hrífandi að sjá þessi tignarlegu dýr bera sig um og hvað þau eiga létt með að hreifa sig.Undanfarið hefur lítið sést til hreindýra þegar farið er um þjóðveginn í Lóni  aðeins smá hópar með 4-8 dýrum  einn og einn hópur stærri. Vefurinn hafði samband við Stefán Helgason á Setbergi,  sem veit manna mest um hreindýr hér um slóðir, og spurði hann hverju þetta sætti; Hélt hann að ástæðan gæti verið sú að lítið væri fyrir þau að hafa á sléttlendinu núna  og eins væri mikil hálka því leituðu dýrin inn til heiðanna. Hreindýrum sem halda sig í Nesjum og á Mýrum hefur fjölgað mikið  og taldi Stefán að í Nesjum  væru eitthvað á annað hundrað dýr. Bændur eru ekki alltaf hressir með að hafa stóra hópa á túnum sínum því dýrin eiga það til að ryðja niður girðingum verði þau hrædd eða einhver styggð komi að þeim þá rjúka þau áfram yfir hvað sem fyrir verður og skilja eftir ónýtar girðingar á stórum svæði.  
|nl|</description>
Öskudagurnn í blíðskaparverðri
      <description>Í dag fengu fyrirtæki og stofnanir heimsóknir frá krökkunum í Grunnskóla Hornafjarðar eins og venjulega á Öskudaginn þar sem sundið var fyrir starfsfólkið. Mörg fyrirtæki eru farin að undirbúa komu krakkana og velja eitthvað gott og gagnlegt fyrir sönginn. Það er ekki bara sælgæti heldur marg nýtilegt og m.a. gaf Menningarmiðstöð Hornafjðarðar krökkun sundkort sem þau geta notað og farið frítt í sund í heila viku. Veðrirð í dag var upp á sitt besta miðað við síðasta öskudag en þá þurftu krakkarir að berjast við rokið til að komast á milli staða.</description>