Mars
Hornafjörður í tungsljósi
Hornafjörður í tungsljósi
Hornafjarðarhöfn skartar sínu fegursta með Hornafjarðarmánann yfir Vestrahorni.

04.03.2008 Mars

Þing um nýsköpun í atvinnumálum og umhverfisvæna framtíðarsýn

Laugardaginn 8. mars nk. efna Framtíðarlandið og Nýheimar til Austurþings. Á þingunum er áherslan lögð á nýsköpun í atvinnumálum og umhverfisvæna framtíðarsýn. Á þinginu verður stefnt saman hugmyndaríku og kraftmiklu fólki úr atvinnulífi, menningu og nýsköpun. Fyrirlesarar eru ýmist heimamenn eða utanaðkomandi en allir eiga þeir það sameiginlegt að láta sig framtíð landsbyggðarinnar varða, þ.m.t. atvinnumál, menntun og almenn lífsgæði. Í upphafi þingsins verður einkum lögð áhersla á sérstöðu svæðisins og tækifærin sem þar búa, svo og þann lærdóm sem draga má af uppbyggingu þekkingar- og nýsköpunarstarfs sl. 5-6 ár í kringum Nýheima. Einng verður rætt um þróun Nýheima í nánustu framtíð, um möguleika á útrás Nýheima-hugmyndarinnar til annarra sambærilegra samfélaga á landsbyggðinni og um þekkingarmiðstöðvar eins og Nýheima sem boðbera nýrrar hugsunar í byggðamálum.

Eftir hádegi flytja fjórir gestafyrirlesarar erindi og tengist hvert þeirra einni af fjórum meginstoðum Nýheima, þ.e. nýsköpun, menntun, menningu og rannsóknum. Að því loknu verður unnið áfram með viðfangsefni þingsins í vinnuhópum. Þinginu lýkur svo með hringborðsumræðum í lok dags þar sem álitsgjafar úr ólíkum áttum munu gera grein fyrir því sem þeim þótti markverðast á þinginu.

Þingið er hið þriðja í röð landshlutaþinga sem Framtíðarlandið stendur fyrir í vetur. Vesturþing var haldið í nóvember í fyrra og Reykjanesþing var haldið nú í febrúar. Vesturþing og Reykjanesþing Framtíðarlandsins tókust með eindæmum vel en þar voru flutt fjölbreytt framsöguerindi og voru umræður mjög upplýsandi og gagnlegar. Við erum viss um að hið sama mun gilda um Austurþing og að þar eiga eftir að koma fram margvíslegar hugmyndir sem munu skipta miklu fyrir nýsköpun í atvinnulífi, menningu og búsetu á Suðaustur- og Austurlandi.

Þingið er öllum opið og hægt er að skrá sig á þingið með því að senda tölvupóst á netfangið aeh6@hi.is eða hringja í síma 864-3444.

Dagskrá Austurþings

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica