Mars
Sýndu samstöðu með því að loka þjóðvegi 1 við Höfn
Umferðatöf varð við Lónsvegamót frá kl 16.45 til 17.10 þar sem nokkrir ökumenn höfðu lokað veginum um vegamótin með ökutækjum sínum. Við viljum með þessu sýna flutningabílstjórum samstöðu í mótmælum þeirra á því okurverði sem orðið er á olíu og bensíni, mál sem snertir okkur öll, og krefjast þess að stjórnvöld taki á málinu og lækki verðið sagði Kristjana Jensdóttir leigubílstjóri á Höfn. Fátt var þarna um flutningabíla á þessum tíma dags en nokkur bílaröð myndaðist út frá vegamótunum til allra átta og sýndu flestir skilning og samstöðu á lokun vegarins.
Kristjana sagði að mótmælum yrði haldið áfram yrði ekkert gert til úrbóta.





Skrifa athugasemd