Apríl
Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson
Pálmi Guðmundsson við kynninguna í morgun.

01.04.2008 Apríl

Gefa 50 völdum viðskiptavinum afsláttar-gjafakort

Í tilefni af eins árs afmæli Nettó, hefur Nettó á Höfn ákveðið að gefa 50 viðskiptavinum afsláttarkort sem einnig eru gjafakort. Kortið getur viðskiptavinur sýnt við kassa og fær hann felldan niður virðisauka af öllum vörum sem hann kaupir í Nettó en einnig mun bætast við 20% afsláttur við öll tilboðsverð sem Nettó er með hverju sinni. Korthafar fá einnig glaðning í hverri viku. Að sögn Pálma Guðmundssonar verslunarstjóra sem kynnti kortið í morgun er hér um frumraun að ræða, því slíkt hefur ekki verið gert áður, en hugmyndin fæddist hér hjá okkur í versluninni á Höfn. Afsláttar og gjafakortin verða aðeins gefin í dag því nú er nákvæmlega eitt ár frá opnun. Kortin munu gilda í eitt ár.

Hinir heppni verða dregnir út þegar þeir greiða fyrir vörur sem þeir kaupa í dag á kassa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica