Apríl
Tea-for-two
Tea-for-two
Tea-for-two

10.04.2008 Apríl

Góð staða jafnréttismála hjá sveitarfélaginu Hornafirði

Staða kynjanna í sveitarfélaginu Hornafirði er jöfnust af öllum sveitarfélögum á suður og austurlandi, en Hornafjörður er í fjórða sæti af öllum sveitarfélögum landsins. Þetta kemur fram í niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar,Evrópuverkefnis sem stýrt var af Jafnréttistofu, en niðurstöður þess voru kynntar á málþingi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Akureyi. Jafnréttisvogin, verkefnið heitir Tea for two á ensku, var styrkt af Evrópusambandinu, og var tilgangurinn að gera stöðu jafnréttismála sýnilega og aðgengilega almenningi. Á málþinginu voru kynntar íslenskar niðurstöður Jafnréttisvogarinnar, en þar var staða jafnréttismála mæld hjá sveitarfélögum í fimm löndum, Íslandi, Búlgaríu, Finnlandi, Grikklandi og Noregi. Til mælingar voru notaðir spurningalistar þar sem spurt var um fjölda kvenna í stjórnunarstöðum, á vinnumarkaði, og kynjaskiptingu samfélagsins. Einnig var spurt um tekjuskiptingu, fjölda barna í dagvistun og atvinnuleysi kvenna. Hægt er að fara inn á heimasíðu verkefnisins og skoða allar spurningar og heildarniðurstöður, og hér má skoða lista yfir röð sveitarfélaganna
Í fyrsta sæti á Íslandi er Akureyrarbær, svo Húnaþing vestra, svo Stykkishólmsbær og í fjórða sæti sveitarfélagið Hornafjörður. Reykjavíkurborg er í 7. sæti og þar á eftir komu nágrannasveitarfélögin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica