Gæsirnar hafa verið að koma í stórum hópum
Síðustu tvo daga hafa farfuglarnir þyrpst til okkar og það er enginn vafi á að vorið er komið. Gæsirnar koma í stórum hópum hundruðum saman með tilheyrandi hávaða og það er fallegt og tignarlegt að sjá marga hópa saman í oddaflugi ásamt öðrum sem mynda beina línu en slík sjón blasti við Hornfirðingum sl. miðvikudag. Björn Arnarson starfsmaður Fuglaathugunarstöðvarinnar segir óhemju mikið komið af skógarþröstum einnig eru heiðlóur, stelkar, hrossagaukar, spóar og maíerlur komnar. Við höfum aldrei merkt eins marga fugla á einum degi og í fyrradag en þá voru 184 skógarþrestir merkti, það er auðvelt að fanga fuglana í netin þegar þeir koma í svona stórum hópum. Hrafninn er orpinn en hann er fyrstur fugla til að verpa, næst er álftin í varpi og svo gæsirnar.
Björn segir að mikið meira sé af máfi á sjónum núna en undanfarin ár og bendi það til að meira æti sé fyrir fuglinn en verið hefur. Mikið er komið af skúm á sandana hér við Suðausturströndina en varp þeirra mislukkaðist algjörlega sl, vor. Nú er bara að bíða þess hver sér fyrstu kríuna og þar dugir ekkert ,, kannski séð ´´en fyrst hefur spurst til hennar hér 19. apríl.





Skrifa athugasemd