Ferð að Bæ í Lóni
Fjórða ferð Ferðafélags A-Skaftfellinga
Fjórða ferð Ferðafélags A-Skaftfellinga var farin fimmtudaginn 10.apríl síðast liðin. Farið var í söguferð að Bæ í Lóni. Ánægjulegt er að sjá hve þátttaka hefur verið mikil í þeim ferðum félagsins sem farnar hafa verið á þessu nýbyrjaða ferðaári félagsins. Í ferðina þetta fimmtudagssíðdegi mættu 54 á öllum aldri á 17 fararskjótum. Lagt var upp frá tjaldstæðinu á Höfn og haldið sem leið lá upp í Lón, beygt var niður afleggjarann niður að Bæ á móts við Reyðará. Það var afar gaman og fróðlegt að koma að Bæ, en leiðsögumaður í ferðinni var Þorsteinn Geirsson frá Reyðará. Hann kunni frá mörgu að segja, bæði frá fólki og staðháttum fyrri ára meðan enn var búið í Bæ í Lóni. Eftir stórskemmtilegt rölt um svæðið var sest niður og yljað sér á heitu kakói og fleiri kræsingum, sem teknar höfðu verið með að heiman.
Næsta ferð félagsins verður laugardaginn 19. apríl en þá verður farið í Krossbæjarskarð í Nesjum. Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu á Höfn kl:10.00. Allir velkomnir.





Skrifa athugasemd