Sveitarfélagið Hornafjörður - Apríl
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
Nýtt skip bætist við í flota Skinneyjar Þinganess
      <description>Nýtt skip í eigu Skinneyjar Þinganess, Ásgrímur Halldórsson SF-250 kom til Hornafjarðar um hádegi í dag (30.apríl). Skipið sem er uppsjávarveiðiskip  er hið glæsilegasta  keypt í Skotlandi  og hét áður Lunar Bow PD 265, smíðað í Flekkefjord i Noregi árið 2000.  Lengd skipsins er 61 m, breidd 13 m. og er það búið 7400 hestafla aðalvél og burðargeta 1540 tonn í kælitönkum. Að sögn Sverris Aðalsteinssonar hjá Skinney Þinganesi er þetta þriðja skipið sem keypt er frá sama fyrirtækinu í Skotlandi og annað skipið sem ber nafnið Ásgrímur Halldórsson.</description>
      <alt>Ásgrímur Halldórsson SF-250</alt>
Hammondhátíð á Djúpavogi
      <description>Dagana 1. – 4. maí verður haldin Hammond hátíð á Djúpavogi í þriðja sinn.  Á hátíðinni munu fjölmargir tónlistarmenn koma fram en hátíðin er haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til þess að geta gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik. 
Hugmyndina að hátíðinni og langstærstan heiður af framkvæmd hátíðarinnar á Svavar Sigurðsson tónlistarkennari á Djúpavogi. Þar munu koma fram fjölmargir listamenn og má segja að þetta sé viðburður sem ekki er hægt að láta framhjá sér fara. Meðal listamannana sem heimsækja Djúpavog má nefna stórsveit Samma, Kristjönu Stefánsdóttur og Dóra Braga með hljómsveit.</description>
Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2007
      <description>Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2007 sem afhentar voru í Freysnesi á degi umhverfisins 25.apríl sl.hlutu 
Charles J. Goemans fyrir að skipuleggja og halda utan um starf sjálfboðaliða á vegum Umhverfisstofnunar og vinnu í nánu samstarfi við bresku sjálfboðaliðasamtakanna BTVC. Meginstarfsstöð sjálfboðaliðanna er í Skaftafelli þar sem meiri hluti starfs þeirra fer fram en auk þess vinna þeir við stígagerð á friðuðum svæðum víða um land og 
Guðrún T. Finnsdóttir og Guðvarður Birgisson, Hæðargarði 11 í Nesjum fyrir vel skipulagða og snyrtilega lóð umhverfis íbúðarhús sitt, þar sem blandað er saman gróðri, grjóti og ýmsum listmunum, bæði aðfengnum en ekki síðri heimagerðum, og hafa með því á fáum árum breytt óhirtum garði í fallegan unaðsreit.</description>
Badmintonhópar frá Hornafirði og Reykjavík hittust á miðri leið
      <description>Fyrir skömmu hittust badmintonhópar frá Hornafirði og Reykjavík á miðri leið, í Vík í Mýrdal, og spiluðu saman dagsstund. Reykjavíkurhópurinn er skipaður Hornfirðingum að stofni til auk ýmissa góðra félaga. Í Vík voru fyrir vaskir badmintonspilarar svo úr var þriggja hópa mót. Móttökur í Vík voru afar góðar svo og aðstaða öll til fyrirmyndar. Eftir mótið var farið í sundlaugina og heita pottinn.  Stefnt er að öðru móti Skaftfellinga að hausti og að þessu sinni á Kirkjubæjarklaustri ef fer sem horfir. Það er fagnaðarefni að þessum viðburði því þarna skemmti sér fólk á ólíkum aldri við þessa krefjandi en fjölbreyttu íþrótt. Úrslit voru ekki sérstaklega gefin út en þátttakendur allir, sem voru kringum tuttugu talsins, voru sjálfum sér og liðum sínum til sóma.</description>
Líflegt í Grunnskólanum í Hofgarði
      <description>Það hefur verið líflegt í Grunnskólanum í Hofgarði að undanförnu. 
Laugardaginn 13. apríl var Eiríkur Hansson með smíðakennslu í skólanum, eins og hann hefur gert einu sinni á ári í allmörg ár. Þá er heill skóladagur tekinn í smíðar svo krakkarnir ná góðum afköstum.
Þriðjudaginn 15. apríl fjölgaði heldur betur á skólalóðinni þegar 6. og 7. bekkur á Höfn komu við á leið í Skaftafell, en hópurinn gisti í skólanum um nóttina.</description>
Dagur umhverfisins
      <description>Dagur umhverfisins er 25.apríl nk. og í tilefni hans hefur verið boðað til fræðslufundar  í Freysnesi  í Öræfum og í Nýheimum á Höfn föstudaginn 25. apríl. Fundurinn í Freysnesi hefst kl 10.00 með ávarpi Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra en hún er nýlega tekin við því starfi. Regína Hreinsdóttir nýr þjóðgarðsvörður mun skýra frá ýmsum áherslubreytingum sem verða í Skaftafelli og framkvæmdum. Hafdís Roysdóttir segir frá Náttúruskólanum  í Skaftafelli og starfseminni hans.Guðrún Guðmundsdóttir ræðir um Perluhópinn og Hjalti Þór Vignisson fjallar um verndaráætlanir. Fundinum líkur með því að Sigurlaug  Gissurardóttir af hendir umhverfisviðurkenningu og að því loknu er boðið uppá súpu og brauð, í boði sveitarfélagsins.
Fundurinn á Höfn hefst kl.14.00 með ávarpi Ólafar Ýrr Atladóttur síðan verður kynning ýmissa aðila á Nýheimum  og Þorvarður Árnason flytur erindi um umhverfisvernd og ferðaþjónustu.</description>
      <alt>Dagur umhverfisins</alt>
Brúargerð yfir Sultartungnaá
      <description>Brúarvinnuflokkur frá Vík í Mýrdal er að hefja framkvæmdir við smíði  brúar yfir Sultartungnaá á veginum upp á Skálafellsjökul. Brúna sem þar var tók af í miklu hlaupi í ánni í haust. Verið er  að hreinsa af klöppum og sprengja fyrir stöplum að brúnni og verður  slegið upp fyrir þeim seinna í vikunni. Áætlað er að brúarsmíðinni verði lokið áður en ferðatíminn byrjar fyrir alvöru. Hægt er að komast á jeppum upp að brúarstæðinu en töluverður snjór er fyrir ofan gilið og verður varla fært upp á jökul á bílum fyrr en kemur fram í maí.</description>
Ferð að Bæ í Lóni
      <description>Fjórða ferð Ferðafélags A-Skaftfellinga var farin fimmtudaginn 10.apríl síðast liðin. Farið var í söguferð að Bæ í Lóni. Ánægjulegt er að sjá hve þátttaka hefur verið mikil í þeim ferðum félagsins  sem farnar hafa verið á þessu nýbyrjaða ferðaári félagsins. Í ferðina þetta fimmtudagssíðdegi mættu 54  á öllum aldri á 17 fararskjótum.  Lagt var upp frá tjaldstæðinu á Höfn og haldið sem leið lá upp í Lón, beygt var niður afleggjarann niður að Bæ  á móts við Reyðará.  Það var afar gaman og fróðlegt að koma að Bæ, en leiðsögumaður  í ferðinni var Þorsteinn Geirsson frá Reyðará. Hann kunni frá mörgu að segja, bæði frá fólki og staðháttum fyrri ára meðan enn var búið  í Bæ í Lóni. Eftir stórskemmtilegt rölt um svæðið var sest niður og yljað sér á heitu kakói og fleiri kræsingum, sem teknar höfðu verið með að heiman.</description>
      <alt>Ferð að Bæ í Lóni</alt>
Gæsirnar hafa verið að koma í stórum hópum
      <description>Síðustu tvo daga hafa farfuglarnir þyrpst til okkar og það er enginn vafi á að vorið er komið. Gæsirnar koma í stórum hópum hundruðum saman með tilheyrandi hávaða og það er fallegt og tignarlegt að sjá marga hópa saman í oddaflugi ásamt öðrum sem mynda beina línu en slík sjón blasti við Hornfirðingum sl. miðvikudag. Björn Arnarson starfsmaður Fuglaathugunarstöðvarinnar segir óhemju mikið komið af skógarþröstum einnig eru heiðlóur, stelkar, hrossagaukar, spóar og maíerlur komnar. Við höfum aldrei merkt eins marga fugla á einum degi og í fyrradag en þá voru 184 skógarþrestir merkti, það er auðvelt að fanga fuglana í netin þegar þeir koma í svona stórum hópum. Hrafninn er orpinn en hann er fyrstur fugla til að verpa, næst er álftin í varpi og svo gæsirnar.</description>
Góð staða jafnréttismála hjá sveitarfélaginu Hornafirði
      <description>Staða kynjanna í sveitarfélaginu Hornafirði er jöfnust af öllum sveitarfélögum á suður og austurlandi, en Hornafjörður er í fjórða sæti af öllum sveitarfélögum á landinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar, Evrópuverkefnis sem stýrt var af Jafnréttistofu, en niðurstöður þess voru kynntar á málþingi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Akureyi. Jafnréttisvogin, verkefnið heitir Tea for two á ensku, var styrkt af Evrópusambandinu, og var tilgangurinn að gera stöðu jafnréttismála sýnilega og aðgengilega almenningi.</description>
      <alt>Tea-for-two</alt>
Stuðlar og göngustafir
      <description>Laugardaginn 5.apríl fór Ferðafélag A-Skaftfellinga í ferð að Miðfelli á Mýrum í björtu og fallegu veðri. Miðfell er ein af náttúruperlunum í nágreni okkar sem fáir vita um og ekki er á allra færi að komast þangað. Miðfell er lítið fell, alsett fjölbreyttum kynjamyndum úr stuðlabergi. Ekki var gengið á fellið en fjölbreytilegar bergmyndanir þess skoðaðar frá láglendinu.
Á vísindavefnum er að finna þennan fróðleik um Stuðlaberg. 
“Stuðlaberg myndast vegna samdráttar í kólnandi efni. Þegar basaltbráð kólnar er hún orðin fullstorkin við um 1000°C hita. „Eftir það kólnar bergið smám saman og dregst við það saman og klofnar í stuðla sem tíðum eru sexstrendir. Stuðlar standa ávallt hornréttir á kólnunarflötinn. Þeir standa því lóðréttir í hraunlögum og innskotslögum, láréttir í göngum en sem geislar út frá miðju í bólstrum.“ (Þorleifur Einarsson, Myndun og mótun lands).</description>
Bridgemót til minningar um Torfa Steinþórsson á Hala
      <description>Árlegt bridgemót var haldið í Þórbergssetri um liðna helgi. Á laugardeginum var spilaður tvímenningur en inn á milli snætt dýrindis hrossakjöt og meðlæti. 
18 pör tóku þátt og varð röð vinningspara eftirfarandi:
1.Birgir Björnsson > Sigfinnur Gunnarsson með 279 stig.
2.Gestur Halldórsson > Magnús Jónasson með 276 stig
3.Sveinn Símonarson > Sigurlaug  Bergvinsdóttir með 275 stig</description>
Fjaran og fellið
      <description>Búið er að fara tvær ferðir hjá ferðafélaginu á þessu ári. Fyrsta ferð félagsins var farin 15 mars á Hvalnesfjörur. Veðurguðirnir heilsuðu okkur nokkuð glaðleg, sólskin var og nánast logn en heldur var þó kalt. Keyrt var sem leið liggur að Hvalnesi og suður fjörurnar allt að Bæjarós. Fjaran var mjög laus  og fyrir þá sem ekki eru vanir að keyra í sandi eða miklum snjó var þetta hið mesta ævintýri.  Af fjörunum er hægt að virða fyrir sér fjallahringinn horna á milli þ.e.a.s. frá Vestrahorni til Eystrahorns, einnig í góðu skyggni má sjá nokkra fjallstinda í fjarska s.s. Snæfell.  Svo er líka gaman  að tylla sér í fjöruna og horfa á hafið og velta fyrir sér lögmálum og leyndarmálum þess .Á heimleiðinni var svo skoðað gamalt útræði frá Hvalnesi sem er rétt vestur við vitann. Af fjörunum var kíkt upp í Ófærubotn sem er skálin fyrir ofan Hvalnesbæinn í von um að sjá tvö lömb sem ekki tókst að ná áður en vetur gekk í garð. En staðurinn er talinn illfær og stórhættulegur eftir að frjósa fer á haustinn. Ekkert sást til lambanna  og er talið að þau séu ekki lengur á lífi enda mikinn snjó að sjá í botninum. Alls fóru 32 í þessa ferð.</description>
Þrjú verkefni á Hornafirði hlutu styrk vegna mótvægisaðgerða
      <description>Styrkirnir vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar á sviði ferðaþjónustu 2008-2009 sem auglýstir voru í janúar síðastliðinn að upphæð 160 milljónir króna hefur nú verið úthlutað til 77 verkefna víða um landið. Þrjú verkefni hér í sveitarfélaginu Hornafirði fengu styrk og voru það Bestfiskur ehf  fyrir Saltfisk-Hagleiksmiðju, kynning á saltfiskvinnslu og gjafavöru, verkefnið hlaut  4.5. millj. sem er hæsti styrkur sem veittur var á Austurlandi. Menningarmiðstöð Hornafjarðar fékk 2.0 millj. vegna verkefnisins Munnleg hefð, miðlun sagnaarfs og svo var það Anne Thomsen og Sæmundur Jónsson í Árbæ vegna verkefnisins “Heimavinnslan Jöklaís og ferðamannfjós” sem hlaut  1.0 millj. Alls bárust 303 umsóknir en eins og fram kom hlutu 77 styrk.</description>
Málþing um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
      <description>Síðasta fimmtudag var haldið málþing í Nýheimum um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Málþingið var haldið að frumkvæði bæjarstjórnar Hornafjarðar og Heilbrigðis – og öldrunarráðs Hornafjarðar. Margir góðir gestir voru á þinginu og greinilegt var að mikil þörf var á málþingi sem þessu. Til stóð að Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra myndi setja málþingið en hann átti ekki heimangengt að þessu sinni. Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis flutti hins vegar ræðu ráðherra á málþinginu.</description>
Gefa 50 völdum viðskiptavinum afsláttar-gjafakort
      <description>Í tilefni af eins árs afmæli Nettó hefur Nettó á Höfn ákveðið að gefa 50 viðskiptavinum afsláttarkort sem einnig eru gjafakort. Kortið getur viðskiptavinur sýnt við kassa og fær hann felldan niður virðisauka af öllum vörum sem hann kaupir í Nettó en einnig mun bætast við 20% afsláttur við öll tilboðsverð sem Nettó er með hverju sinni. Korthafar fá einnig glaðning í hverri viku. Að sögn Pálma Guðmundssonar verslunarstjóra sem kynnti kortið í morgun er hér um frumraun að ræða því slíkt hefur ekki verið gert áður, en hugmyndin fæddist hér hjá okkur í versluninni á Höfn. Afsláttar og gjafakortin verða aðeins gefin í dag því nú er nákvæmlega eitt ár frá opnun. Kortin munu gilda í eitt ár.</description>