Úrslit í firmakeppni Hornfirðings
Firmakeppni Hornfirðings fór fram í talsverðum vindi ( allir hafa talað um blíðskaparveður ;) en það kom ekki að sök því að hestakosturinn var góður að venju. Fjölmörg fyrirtæki styrktu mótið og vill félagið færa þeim kærar þakkir fyrir stuðninginn. Þau nýmæli voru höfð á mótinu að riðinn var tví og þrígangur. Í tvígangi er riðið fegurðartölt og brokk en í þrígangi er riðið tölt, brokk og skeið.Í kaffihléi sýndu fjögur ungmenni atriði, sem þau höfðu samið og æft sjálf, í tamningargerðinu og var því mjög vel tekið. Í gerðinu sýndu þau m.a samhæfinga æfingar , spænska sporið, kyssa ístöð og fleira. Með þessu vildu þau sýna að hægt væri að gera svo miklu meira á hestum en bara að keppa. Þetta unga fólk heitir Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Nótt frá Sauðárkróki, Gunnar Ásgeirsson á Lukku frá Ási, Heiða J Pálmadóttir á Blíðu frá Nautabúi og Heiðdís Anna Marteinsdóttir á Hófvarpni frá Ártúni. Alveg frábært framtak hjá þeim!
Helstu úrslit urðu þessi:
Barnaflokkur:
1. Jón Bakari
Heiðdís Anna Marteinsdóttir á Hófvarpni frá Ártúni
Unglingaflokkur:
1. Fóðurblandan
Gunnar Ásgeirsson á Snorra Goða frá Feti
2. Svartlist
Heiða Jóhanna Pálmadóttir á Gylfagynningu frá Oddhól
3. Dýralæknaþjónusta Kjartans
Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Nótt frá Sauðárkróki
1.flokkur (meira keppnisvanir )
1. Olís hf
Áshildur Gísladóttir á Hami frá Hamrahlíð
2. Myllan
Jóna Stína Bjarnadóttir á Eldi frá Fornustekkum
3. Hestagallery
Birna Sólveig Kristjónsdóttir á Sóleyju frá Lækjarbrekku
2. flokkur (minna keppnisvarnir)
1. Kjörís
Jón Finnson á Tangó frá Sauðanesi
Opinn flokkur Tvígangur.
1. Markholt
Hanni Heiler á Glóa frá ?
2. Erpur ehf
Marteinn Gíslason á Bjarma frá Ártúni
3. Glitnir
Marteinn Gíslason á Þyrnirós frá Ártúni
Opinn flokkur Þrígangur.
1. Glompa
Pálmi Guðmundsson á Baun frá Kúsker
2. Flugfélagið Ernir
Eyjóflur Krisjónsson á Fána frá Kollsholti
3. Ísfugl
Jón Finnson á Stjörnunótt frá Mosfelli.





Skrifa athugasemd