Júní

Fjöruferðir

Fjölbreytt og sérstakt, algjör ævintýraferð! - 26.06.2008 Júní

Fjöruferðir, fyrirtækið sem Haukur Sveinbjörns og Elvar Unnsteins stofnuðu á síðasta ári dafnar vel og fær góða umsögn. Haukur segir að núna sé allt að komast í fullan gang, maí hafi verið mjög góður þá hafi komið stórir hópar, ég hef verið með kynningar á ferðunum og m.a. fékk ég stóran söluaðila sem sagði að fjöruferðir væri það spútniskasta fyrirtæki sem fólk hefði upplifað og að fara þetta væri svo fjölbreytt og sérstakt, algjör ævintýraferð. Eigandi Búlgarskrar ferðaskrifstofu sem var á kynningu Fjöruferða ætlar að koma með hópa hingað en fram að þessu hafa Íslendingar verið fjölmennastir. Lesa meira
 
Jaki á leið til Jökulsárlóns

Íslendingum fjölgar eftir því sem líður á júní - 25.06.2008 Júní

Aðsókn að Jökulsárlóni er góð svipuð og byrjunin var í fyrra segir Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón. Þetta gengur ljómandi vel og nú eru allir hjólabátarnir fjórir komnir á lónið og allt komið á fullt við lónið og engin ferðakreppa finnanleg sem betur fer. Erlendir ferðamenn eru fjölmennastir við lónið og íslendingum fer fjölgandi eftir því sem líður á júní. Kríuvarpið við lónið er í betra lagi mun meira en í fyrra, selirnir eru eldhressir og spóka sig á ísnum þegar veður er gott gestunum til mikillar ánægju. Skúmur hefur verið fastur kostgangari í þjónustumiðstöðinni við lónið í mörg ár og nú hafa sólskríkja og æðarkolla komið sér í fast fæði þar. Einar Björn segir að skúmurinn taki þessum nýju félögum vel einkum sólskríkjunni og þau komi í mat á sama tíma, skúmurinn viti áreiðanlega að hagi hann sér ekki vel og virði tilverurétt hinna verði honum umsvifalaust vísað burt og ekkert frítt fæði lengur. Lesa meira
 
Valgeir málari kennir syninum áratökin

Silungsveiðin góð í Hornafirði - 25.06.2008 Júní

Góð silungsveiði er í Hornafirðinum það sem af er sumri. Vel hefur veiðst bæði af sjóbirtingi og bleikju og er silungurinn stór og vel feitur ólíkt því sem var í fyrrasumar. Karl Sigurðsson sem allt veit um veiðiskap í firðinum segir að þetta sé að þakka því að nú sé fullt af æti í firðinum og sjónum, mikið meira en verið hefur síðustu ár einkum síðasta sumar þá var nánast ekkert æti og veiði bæði lítil og léleg. Það hefur löngum þótt góð afslöppun að fara út á fjörðinn og renna fyrir silung eða bara til að njóta kyrrðarinnar og umhverfisins. Lesa meira
 
Skútan

Skúta í óskilum! - 24.06.2008 Júní

Ekki er enn vitað hvað verður um skútuna sem liggur innsigluð við smábátabryggjuna hér í Hornafjarðarhöfn og óljóst hver eða hverjir eru réttir eigendur hennar. Skútan kom til Hornafjarðar frá Hollandi eða Þýskalandi í fyrrahaust og voru tveir menn um borð. Sögðust þeir vera að flytja skútuna hingað fyrir eigendur hennar og hún yrði sótt eftir 2-3 daga og þar með yfirgáfu þeir staðinn. Síðan hefur ekkert bólað á neinum eigendum eða öðrum forsjármönnum skipsins og verði svo áfram gætu Hornfirðingar farið að vonast eftir uppboði á þessari glæsilegu fleytu . Lesa meira
 
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

Bæjarráð mótmælir harðlega auglýsingu Vatnajökulsþjóðgarðs - 23.06.2008 Júní

Á fundi Bæjarráðs í dag lagði Bæjarráð fram eftirfarandi bókun vegna staðsetningar höfuðstöðva Vatnajökulsþjóðgarðs: Bæjarráð Hornafjarðar mótmælir harðlega að skrifstofustarf við Vatnajökulsþjóðgarð hafi verið auglýst með aðsetur í miðborg Reykjavíkur og hvetur yfirstjórn þjóðgarðsins til þess að endurskoða ákvörðunina. Einnig áréttar bæjarráð fyrri yfirlýsingar sínar og bæjarstjórnar þess efnis að höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs skuli staðsettar í Sveitarfélaginu Hornafirði. Tillaga þess efnis var lögð fram á stjórnarfundi Vatnajökulsþjóðgarðs þann 7. desember 2007 en niðurstaðan varð önnur. Mikilvægt er að þau störf sem skapast í tengslum við uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs verði staðsett á áhrifasvæði þjóðgarðsins eins og lagt var upp með við allan undirbúning að stofnun hans. Lesa meira
 
Vorhreingerning á bryggjunni

Björn lóðs á ferðalagi - 23.06.2008 Júní

Björn lóðs er núna á leiðinni til Þorlákshafnar með dýpkunarskipið Reyni í eftirdragi og er áætlunin að vera í Þorlákshöfn um kl. 9 í fyrramálið. Við fórum héðan frá Höfn til Djúpavogs kl. 9 á laugardagsmorgun og þaðan var lagt af stað með prammann kl.17 á laugardaginn sagði Torfi Friðfinnsson hafnsögumaður á lóðsinum. Þetta er heljarstór prammi svo það eru bara rólegheit í ferðinni ganghraði 3.7 mílur að jafnaði, blíðskaparveður og sléttur sjór. Lesa meira
 
Sparisjóður við gróðursetningu

Starfsmenn Sparisjóðsins í gróðursetningavinnu - 20.06.2008 Júní

Í síðustu viku mættu starfsmenn Sparisjóðs Hornafjarðar og nágrennis ásamt dugmiklu ungu fólki í gróðursetningavinnu í Drápsklettaskógi á Ægissíðu. Gróðursetningin gekk fljótt og vel, enda segir máltækið “Margar hendur vinna létt verk.” Trjábolirnir sem hópmyndin er tekin við eru rafmagnsstaurar, en ef til vill eiga einhver trjánna sem gróðursett hafa verið þarna eftir að bera álíka myndarlega boli. Það er árviss viðburður hjá starfsmönnum Sparisjóðsins og Landsbankans að fara í gróðursetningaferð í Drápsklettaskóg Lesa meira
 
17. júní 2008 Á hóteltúninu

Hátíðarhöldin á 17. júní - 19.06.2008 Júní

Hátíðahöldin á 17. júní á Hornafirði hófust með skrúðgöngu frá Vesturbrautarplaninu þar sem Lúðrasveit Hornafjarðar spilaði fyrir göngunni sem leið lá á Hóteltúnið. Þegar þangað var komið lék Lúðrasveitin nokkur létt lög. Kynnir dagsins Sævar Þór Gylfason, tók svo við og bauð fólk velkomið, en ágætis mæting var þrátt fyrir töluverðan vind og kulda. Árni Rúnar Þorvaldsson formaður bæjarráðs flutti hátíðarávarp því næst var ávarp Fjallkonunnar, en það var Stefanía Anna Sigurjónsdóttir sem var fjallkonan að þessu sinni og ávarp nýstúdents flutti Hrafn Eiríksson. Því næst var komið að því að veita íþróttafólki viðurkenningar og velja íþróttamann USÚ 2007 og voru það stjórnarkonur úr USÚ Ragnhildur Einarsdóttir og Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir sem sáu um afhendinguna. Lesa meira
 
Olgeir og Gunnar Örn

Stækkun Álaugareyjarbryggju gengur vel - 12.06.2008 Júní

Stutt er í að lokið verði við endurbætur á austurkanti Álaugareyjarbryggju og búið að reka niður stálþil fyrir enda bryggjunnar Því næst verður rekið niður 150m. langt stálþil frá vesturenda bryggjunnar vestur fyrir gömlu trébryggjuna og breikkar þetta nýja bryggjusvæðið um 6 m. breiðast vestast. Nýja bryggjan mun ná vestur fyrir gömlu trébryggjuna og sjá má á myndinni spýtu sem sýnir hvað langt verður í stálþilið frá trébryggjunni þ.e 6 m. Lesa meira
 
Seljavellir júní 2008

Sumarið er komið og heyskapur hafinn - 11.06.2008 Júní

Heyskapur hófst á Seljavöllum í Nesjum í morgun. Elín húsfreyja á Seljavöllum segir að spretta sé mjög góð, ótrúlega góð miðað við hvað þetta er snemma og það er svo til allt gras svo jafnsprottið. Maí hefur verið hagstæður fyrir grassprettu bæði hlýtt í veðri og mátulegur raki. Góðan sólarhring tekur að þurrka heyið og hirða það í rúllubagga. Elín segir að í sumar verði allt hey hirt í rúllubagga. Kúabú er á Seljavöllum 62 mjólkurkýr en í heild eru nautgripirnir um 200. Handa svona stórum bústofni þarf heyforðinn að vera13-1500 heyrúllur. Lesa meira
 
Höfn

Skortur á leiguhúsnæði á Höfn - 11.06.2008 Júní

Sala fasteigna hér á Hornafirði gengur alveg þokkalega og það er alltaf hreyfing á markaðinum segir Sigríður Kristinsdóttir hdl. og löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni INNI. Auðvitað höfum við fundið fyrir þessu lánastoppi bankanna og hvað það dregur mikið úr viðskiptum með fasteignir. Hér eru fáar eignir á söluskrá færri en undanfarin ár og lítið um húsnæði á leigumarkaði. Sigríður á von á að farið verði í byggingu á leiguhúsnæði í sumar og er í athugun hvernig húsnæði kæmi helst til greina. Bæjarfélagið á um 60 leiguíbúðir sem allar eru í leigu og um 10 umsækjendur eru á biðlista eftir íbúðum. Lesa meira
 
Hornfirðingur hópreið

Félagsmót Hornfirðings næstu helgi - 11.06.2008 Júní

Félagsmót Hornfirðings verður haldið helgina 14. og 15. júní að Stekkhól í Nesjum Hornafirði. Mótið byrjar kl. 13:00 á laugardag. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, a og b flokki , tölti, skeiði og stökki. Einnig verða sýnd unghross í tamningu. Mótið er einnig úrtaka fyrir landsmót sem haldið verður í byrjun júlí á Gaddastaðaflötum við Hellu. Eftir keppni á laugardag verður grillað og svo haldið í útreiðartúr útí Skógey sem er mjög gott útreiðaland og útsýnið óviðjafnanlegt. Lesa meira
 
Rarik_Gulli-Rammi

Að vísu pínulítið grennri þá - 10.06.2008 Júní

Fréttamaður vefsins hitti þá félaga Sigurjón Gunnarsson og Guðlaug Vilhjálmsson (Gulli rammi), starfsmenn Rarik á Höfn, er þeir voru að huga að bilun í heitavatnskerfinu neðanjarðar í Miðtúninu og voru ekkert að tvínóna við að renna sér niður um örmjótt op. Aðspurður sagði Sigurjón að þetta væri ekkert mál og því til sönnunar sagði hann að einu sinni hefðu þeir lent í því að gat kom á leiðslu þarna niðri og sjóðheitt vatnið spýttist út, þá áttu þeir fótum fjör að launa og það hefði fyrst verið þegar þeir voru komnir upp á götu að þeir áttuðu sig á því að þeir höfðu farið báðir í einu upp um gatið. Sigurjón bætti svo við að þeir hefðu að vísu verið pínulítið grennri þá. Lesa meira
 
Ásgrímur Halldórsson SF-250

Síldarlöndun - 09.06.2008 Júní

Ásgrímur Halldórsson Sf 250 kom til Hornafjarðar í gærkvöldi með 1150 tonn af síld sem landað er hjá Skinney Þinganesi. Síldin er úr norsk-íslenska stofninum veidd á veiðisvæðinu suðaustur af Jan Mayen um 30 tíma siglingu frá Hornafirði. Mikið af aflanum var 300 gramma síld og fóru 550 tonn til vinnslu og 600 tonn í bræðslu. Ásgrímur Ingólfsson skipstjóri var mjög ánægður með skipið en þetta er fyrsta veiðiferð þessa nýja Ásgríms Halldórssonar. Skipið heldur aftur til veiða í kvöld. Fjórtán manna áhöfn er um borð. Lesa meira
 
Golfbúðarmót

Golfvertíðin er að hefjast - 09.06.2008 Júní

Golfbúðin í Hafnarfirði var styrktaraðili golfmótsins sem haldið var laugardaginn 7. Júní á Silfurnesvelli. Mótið fór fram í þokkalegasta veðri og voru þátttakendur ánægðir með daginn. Magnús Jónason fór með sigur af hólmi í karlaflokki og Anna Halldórsdóttir í kvennaflokki. Þetta var punktamót. Nánari úrslit eru á www.golf.is Um leið og Golfbúðinni eru færðar þakkir fyrir stuðninginn er golfáhugafólki bent á að fylgjast með auglýsingum varðandi golfkennslu en Sturla golfkennari er væntalegur aftur til okkar í sumar. Einnig eru að hefjast golfæfingar fyrir börn og unglinga og eru þær þátttakendum að kostnaðarlausu. Mætum vel á völlinn í sumar og nýir félagar eru alltaf velkomnir. Golfklúbbur Hornafjarðar Lesa meira
 
Sundlaugarframkvæmdir júní 2008

Á sjötta þúsund rúmmetrar steypu - 09.06.2008 Júní

Framkvæmdir við sundlaugarbygginguna ganga vel og fyrir helgina var verið að steypa veggina í húsinu. Verktakafyrirtækið Mikael ehf. er með stærsta hlutann í uppbyggingu sundlaugarinnar, uppsteypu og frágang úti og inni. Gunnar Gunnlaugsson byggingameistari segir að veturinn hafi ekki verið nógu hagstæður hvað veðurfar varðar þannig að ekki var hægt að vera í steypuvinnu fyrr en í vor síðan hefur allt gengið ljómandi vel. Búið er að steypa innaní sundlaugina nema botnplötuna, loftplatan yfir kjallara hússins er komin og núna erum við með veggina og þetta verður fokhelt í byrjun júlí. Á sjötta hundrað rúmmetrar af steypu fara í bygginguna. Rósaberg ehf. sér um jarðvinnslu og kemur með heimsins besta steypuefni af Stokksnesi, Rafhorn sér um rafmagnið og Bragi Karlsson um pípulagnir. Lesa meira
 
Fjöruferð í Bljábjörg. 31 maí 2008

Hvað þýðir orðið KJÖGGUR? - 08.06.2008 Júní

Um síðustu helgi fór ferðafélagið í fjöru og hella- skoðunarferð austur í Álftarfjörð. Labbað var með ströndinni frá Blábjörgum út að Melrakkaneshellum undir leiðsögn Jónu Þormóðs. Margt skemmtilegt var að sjá á leiðinni,t.d fugla, seli, hreindýr hellar eyjar og sker. Ekki skemmdi það fyrir hvað veðrið var gott. Fræddi Jóna okkur um örnefni og staðhætti til lands og sjávar. Langar okkur til að varpa einni spurningu til ykkar. Veit einhver hvað orðið KJÖGGUR þýðir,ef svo er sendið okkur endilega svarið. En Kjöggur er nafn á litlu skeri skammt frá landi fyrir neðan Blábjörg. Að lokinni skemmtilegri göngu var öllum boðið í kaffi og kökur á Rannveigarstöðum. Lesa meira
 
Sjómannadagurinn 2008

Sjómannadagshelgin fór vel fram - 07.06.2008 Júní

Að vanda byrjaði formleg sjómannadagshelgi með kappróðri á laugardeginum 31.maí þar sem fimm kallalið og þrjú kvennalið öttu kappi. Urðu úrslitin þannig að lið Sigurðar Ólafssonar sigraði kallaliðið með tímann 1:12 og hlutskarpastar í kvennaróðrinum voru sjómannskonur með tímann 1:09, en þess má einnig geta að þetta var þriðja árið í röð sem þær unnu og einnig í fyrsta skinn þar sem kvennalið er með betri tíma en kallalið og unnu þær bikarinn eftirsótta til eignar. Á eftir voru svo bryggjuleikir, en frekar dræm þátttaka var í þeim. Þyrla landhelgisgæslunnar kom og sýndi listir sýnar ásamt Björgunarsveit Hornafjarðar og æfðu þeir björgun manna úr sjó og skipi. |nl| Lesa meira
 
Einar Þórólfsson

Ævintýralegt fiskirí - 06.06.2008 Júní

Mikill og góður afli hefur verið hjá Hornafjarðarbátum í vor og snurvoðarbátar hafa mokaflað. Humarveiðar hafa gengið vel en nokkuð er farið draga úr veiðum núna. Allur þorskur og humar er unninn hér á staðnum en aðrar fiskitegundir fara á fiskmarkaðinn. Einar Þórólfsson hjá Fiskmarkaði Suðurnesja á Hornafirði segir að óvenjumikið af fiski hafi komið á markaðinn undanfarið, þetta hefur verið alveg ævintýralegt fiskirí og góður fiskur núna seinni partinn í vetur og vor alveg framundir sjómannadag síðan hefur lítil veiði verið. Fleiri aðkomubátar hafa landað hér en áður og kemur afli þeirra allur á markaðinn og er allt sent burt. Síðustu fimm mánuði höfum við fengið 2000 tonn af fiski en allt árið í fyrra fengum við 3500 tonn. Lesa meira
 
Kýrnar á Brunnhól

Slett úr klaufunum! - 06.06.2008 Júní

Hvernig væri að skella sér með börnin í sveitina á morgun laugardag og sjá hvernig kýrnar láta þegar þeim er sleppt út úr fjósi í fyrsta skipti í sumar. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með þegar kýrnar sletta úr klaufunum sem er mjög skemmtilega sjón en sjón er sögu ríkari. Einnig verður hægt að kaupa þar Jöklaís sem framleiddur er þar á bæ, ýmist til að borða á staðnum eða taka með sér heim. Lesa meira
 
Lækjarnes_

Fagurt kvöld í Lækjarnes í Nesjum - 05.06.2008 Júní

Skemmtileg og fróðleg ferð í Lækjarnes undir góðri leiðsögn Sigurbjargar Ragnarsd sem sýndi okkur marga hóla sem allir báru nöfn. Ferðin hófst við Bryggjuhól einnig má nefna Efstihóll, Hesthóll og Hornahóll . Bærinn stendur á Fremstahól og þar eru þau Sigfinnur og Sigurbjörg að gera upp lítið sætt hús, þar sem áður var járnsmiðja. Gaman var að virða fyrir sér Hornfjörðinn, Dilksnesið, fjallahringinn og hugsanlega nýja vegarstæði yfir Hornafjarðarfljótin,frá þessu sjónarhorni. Þess má geta að þarna var starfrækt bátasmíðastöð í mjög fallegu húsi með frönskum gluggum og var Björn Eymundsson yfirsmiður og einnig smíða hann margt fleira eins og líkkistur. Talið er að hann hafi smíðað yfir 100 báta en þó ekki alla í Lækjarnesi, hann fór einnig um sveitir og smíðaði fyrir bændur og búalið. Frá Lækjarnes var hafsögumálum sinnt allt til ársins 1954 af myndarbrag og oft við erfiðar aðstæður af Birni Eymundssyni og síðann af Jóhanni Albertsyni. Lesa meira
 
Himnaríki á jörð (@Skaftafell)

Stofnhátíð Vatnajökulsþjóðgarðs - 03.06.2008 Júní

Vatnajökulsþjóðgarður verður stofnaður næstkomandi laugardag. Efnt verður til stofnhátíðar þjóðgarðsins á fjórum rekstrarsvæðum hans laugardaginn 7. júní kl. 15:00 - 17:00. Hátíðin fer fram í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Boðið verður upp á skemmtiatriði og veitingar. Upplýsingar um rútuferðir á stofnhátíðina má nálgast á heimasíðu umhverfisráðuneytisins, www.umhverfisraduneyti.is. Vatnajökulsþjóðgarður mun við stofnun ná yfir um 12.000 ferkílómetra svæði, eða um 12 prósent af flatarmáli landsins og verður því stærsti þjóðgarður Evrópu. Lesa meira
 
Sandra Sigmundsdóttir

Kírópraktor verður starfandi á Höfn í sumar - 02.06.2008 Júní

Sandra Sigmundsdóttir kírópraktor er búsett á Höfn núna í sumar vegna knattspyrnuþjálfunar og verður með aðstöðu í SportHöllinni til að taka á móti sjúklingum. Er þetta kærkomið fyrir heimamenn sem hafa þurft að fara til Reykjavíkur til að komast til hnykkjara. Sandra verður fyrst og fremst með tíma á morgnana en að öðru leiti með sveigjanlega móttöku út af fótboltanum. En hvað er kírópraktík? Kírópraktík er heilbrigðisfag sem einbeitir sér að greiningu, meðhöndlun og að fyrirbyggja vandamál í stoðkerfi líkamans. Slík vandamál hafa víðtæk áhrif á starfsemi taugakerfisins sem og á almenna heilsu. Áhersla er á notkun verklegrar meðferðar, eins og liðlosun, staðbundið nudd/þrýstipunkta, teygjur og ráðleggingar um æfingar og líkamsbeitingu. Lesa meira
 
Hornfirskt-sumar-2008_mynd

Sumarbæklingur ÆTH kominn á vefinn - 02.06.2008 Júní

Sumarbæklingur æskulýðs- og tómstundaráðs Hornafjarðar Hornfirskt sumar 2008 er kominn út. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um íþróttir, tómstundir og ýmsa afþreyingu fyrir börn og unglinga í sumar. Í þessari viku verður bæklingnum dreift í hvert hús á Hornafirði. Hér kemur ávarp Matthildar Ásmundardóttur formanns Æskulýðs- og tómstundaráðs: Nú er að hefjast eitt skemmtilegasta tímabil ársins að mínu mati. Gróðurinn er að lifna við, það hlýnar í lofti og það gefast fleiri tækifæri til útiveru. Það er margt hægt að finna sér til dundurs hér í sveitarfélaginu á sumrin. Nú eigum við glæsilegan íþróttavöll sem mér til mikillar ánægju er mikið nýttur af íbúum sveitarfélagsins ungum sem öldnum. Lesa meira
 
Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir

Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir í öðru sæti í keppninni Ungfrú Íslands - 01.06.2008 Júní

Ungfrú Ísland var valin með pompi og prakt á föstudagskvöldið, 30. maí, á Broadway. Alexandra Helga Ívarsdóttir úr Reykjavík var valin Ungfrú Ísland en í öðru sæti varð Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir sem býr á Hornafirði. Hún var einnig valin Valencia og Sothys stúlkan. Verður Ingibjörg fulltrúi Íslands í Miss Universe sem fer fram í Vietnam í júlí n.k. Ingibjörg er 23. ára og vinnur í apóteki Lyfju á Höfn. Hún er fædd og uppalin á Seyðisfirði og er austfirðingur langt aftur í ættir. Foreldrar hennar eru Egill Þór Ragnarsson og Íris Alda Stefánsdóttir. Unnusti hennar er hornfirðingur, Guðmundur Oddgeir Þorgeirsson og búa þau eins og er á Hornafirði. Ingibjörg er stúdent af náttúrufræðibraut og stefnir á verkfræðinám í Háskóla Íslands í framtíðinni. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica