Júní
Sandra Sigmundsdóttir
Sandra Sigmundsdóttir
Sandra Sigmundsdóttir

02.06.2008 Júní

Kírópraktor verður starfandi á Höfn í sumar

Sandra Sigmundsdóttir kírópraktor er búsett á Höfn núna í sumar vegna knattspyrnuþjálfunar og verður með aðstöðu í SportHöllinni til að taka á móti sjúklingum. Er þetta kærkomið fyrir heimamenn sem hafa þurft að fara til Reykjavíkur til að komast til hnykkjara. Sandra verður fyrst og fremst með tíma á morgnana en að öðru leiti með sveigjanlega móttöku út af fótboltanum.
En hvað er kírópraktík?
Kírópraktík er heilbrigðisfag sem einbeitir sér að greiningu, meðhöndlun og að fyrirbyggja vandamál í stoðkerfi líkamans. Slík vandamál hafa víðtæk áhrif á starfsemi taugakerfisins sem og á almenna heilsu. Áhersla er á notkun verklegrar meðferðar, eins og liðlosun, staðbundið nudd/þrýstipunkta, teygjur og ráðleggingar um æfingar og líkamsbeitingu.
Þær aðferðir sem kírópraktorar nota hafa reynst árangursríkar sem verkjameðferðir gegn hverjum þeim vandamálum og óþægindum sem fylgt geta slysum, stressi, hreyfingarleysi, slæmri líkamsstöðu, veikindum og hversdags slitum sem gerist hjá okkur öllum, með því að endurhæfa stoðkerfi líkamans.
Kírópraktorar bjóða upp á meðferðir sem staðfestar hafa verið að virtum og vel þekktum rannsóknum og eru víða ráðlagðar sem meðferðarúrræði geng hverskyns verkjum og vandamálum tengdum stoðkerfinu.
Af hverju ætti ég að fara til Kírópraktors?
Sú hugmynd sem flestir hafa um kírópraktora er að þeir meðhöndli einungis bakvandamál og þá eingöngu með því að "hnykkja" hryggjarliðum. Þetta er útbreiddur misskilningur. Kírópraktorar eru sérmenntaðir í að greina og meðhöndla öll vandamál sem snúa að stoðkerfi líkamans, þ.e. liðum, vöðvum og festingum.
Kírópraktor meðhöndlar m.a.:
* Vandamál í baki og hálsi
* Höfuðverki
* Sinaskeiðabólgur
* Handa- og/eða fótadofa
* Íþróttameiðsl
* Vöðvabólgu
* Þursabit
* Liðagigt
* Slæma líkamsstöðu
* Slys/meiðsli

Sandra Sigmundsdóttir er fædd og uppalin í Eyjafirði og hefur starfað sem kírópraktor á Akureyri síðan 2006. Hún varð stúdent af íþrótta- og náttúrufræðibraut frá VMA vorið 1999 og útskrifaðist hún með hæstu einkunn í stærðfræði. Haustið 1999 fór hún til Bandaríkjanna á skólastyrk fyrir að spila knattspyrnu og nema líffræði. Hún útskrifaðist með BS gráða í líffræði frá University of Bridgeport og hélt áfram námi við sama skóla. Í desember 2005 útskrifaðist hún síðan með doktorsgráða í kírópraktík frá University of Bridgeport College of Chiropractic, sem er fjögurra ára nám. Í því námi fékk hún ýmiskonar viðurkenningar, var t.d. boðin innganga inn í elsta og virtasta heiðursfélag nemanda í Bandaríkjunum og hún útskrifaðist með hæstu einkunn.


Opnunartímar eru 08:30 - 12:00 alla virka daga og eftir pöntunum.
Upplýsingar og tímapantanir eru í síma 898 3044.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica