Síldarlöndun
Ásgrímur Halldórsson Sf 250 kom til Hornafjarðar í gærkvöldi með 1150 tonn af síld sem landað er hjá Skinney Þinganesi. Síldin er úr norsk-íslenska stofninum veidd á veiðisvæðinu suðaustur af Jan Mayen um 30 tíma siglingu frá Hornafirði. Mikið af aflanum var 300 gramma síld og fóru 550 tonn til vinnslu og 600 tonn í bræðslu. Ásgrímur Ingólfsson skipstjóri var mjög ánægður með skipið en þetta er fyrsta veiðiferð þessa nýja Ásgríms Halldórssonar. Skipið heldur aftur til veiða í kvöld. Fjórtán manna áhöfn er um borð.
Jóna Eðvalds, áður Krossey SF 20, sem væntanleg nú í vikunni frá Póllandi fer á síldveiðar eftir næstu helgi og sagði Ásgrímur að þá yrðu skipin saman með tvílembingstroll





Skrifa athugasemd