Júní
Seljavellir júní 2008
Seljavellir júní 2008
Heyskapur á fullu á Seljavöllum
Mynd 1 af 3
1 2 3

11.06.2008 Júní

Sumarið er komið og heyskapur hafinn

Heyskapur hófst á Seljavöllum í Nesjum í morgun. Elín húsfreyja á Seljavöllum segir að spretta sé mjög góð, ótrúlega góð miðað við hvað þetta er snemma og það er svo til allt gras svo jafnsprottið. Maí hefur verið hagstæður fyrir grassprettu bæði hlýtt í veðri og mátulegur raki. Góðan sólarhring tekur að þurrka heyið og hirða það í rúllubagga. Elín segir að í sumar verði allt hey hirt í rúllubagga. Kúabú er á Seljavöllum 62 mjólkurkýr en í heild eru nautgripirnir um 200. Handa svona stórum bústofni þarf heyforðinn að vera13-1500 heyrúllur.

Á traktornum var Egill Eiríksson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica