Júní
Jaki á leið til Jökulsárlóns
Jaki_a_leid_til_Jokulsarlons.jpg
Jaki á leið til Jökulsárlóns
Mynd 1 af 2
1 2

25.06.2008 Júní

Íslendingum fjölgar eftir því sem líður á júní

Aðsókn að Jökulsárlóni er góð svipuð og byrjunin var í fyrra segir Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón. Þetta gengur ljómandi vel og nú eru allir hjólabátarnir fjórir komnir á lónið og allt komið á fullt við lónið og engin ferðakreppa finnanleg sem betur fer. Erlendir ferðamenn eru fjölmennastir við lónið og íslendingum fer fjölgandi eftir því sem líður á júní.
Kríuvarpið við lónið er í betra lagi mun meira en í fyrra, selirnir eru eldhressir og spóka sig á ísnum þegar veður er gott gestunum til mikillar ánægju. Skúmur hefur verið fastur kostgangari í þjónustumiðstöðinni við lónið í mörg ár og nú hafa sólskríkja og æðarkolla komið sér í fast fæði þar. Einar Björn segir að skúmurinn taki þessum nýju félögum vel einkum sólskríkjunni og þau komi í mat á sama tíma, skúmurinn viti áreiðanlega að hagi hann sér ekki vel og virði tilverurétt hinna verði honum umsvifalaust vísað burt og ekkert frítt fæði lengur.

Um sl. helgi fór Einar Björn á hjólabátnum Jaka frá Höfn yfir á Suðurfjörur og keyrði suður fjörur að Staðará fór þar upp á þjóðveg og eftir veginum að Jökulsárlóni. Ferðin tók hátt í þrjá tíma og gekk ljómandi vel enda farartækið hannað fyrir sjó og landferðir.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica