Árný A. Runólfsdóttir hómópati og Sigurður J. Einarsson höfuðbeina og spjaldhryggsjafnari verða með móttöku hér á Höfn 24. og 25. júlí í Mánagarði.
Sigurður er mörgum kunnur en hann hefur unnið hér áður. Hann lauk námi frá Nuddskóla Reykjavíkur 1996, námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun 1998, námi í Bowen tækni 2002 og sérnámi í Bowen fyrir íþróttameiðsli í apríl 2005 og 2006. Hann stundaði svo nám í EFT , Emotional Freedom Technique, frá 2004 til 2006. Þessar meðferðir reynast vel við bakvandamálum, hálsríg, mislengd á fótleggjum eða gömlum íþróttameiðslum, og hefur einnig reynst vel við mígreni, lesblindu, einbeitingarskorti, sjóntruflunum og depurð. Ýmiskonar verkir og önnur óþægindi, sem hrjá mannfólkið geta orsakast af óhöppum og áföllum sem það verður fyrir í daglegu amstri og flóknu samfélagi nútímans.
Lesa meira