Júlí
Umferðarkönnun um Öxi
Umferðarkönnun um Öxi
Umferðarkönnun um Öxi (Mynd Vegagerðin)
Mynd 2 af 2
1 2

21.07.2008 Júlí

Umferðarkönnun í Berufirði um helgina

Vegagerðin stóð fyrir umferðarkönnun á gatnamótum Hringvegar og Axarvegar í Berufirði um helgina. Könnunin stóð yfir frá kl. 08:00 ? 23:00 báða dagana. Tilgangur með könnuninni var að kanna áhrif fyrirhugaðs Axarvegar á umferðarvenjur vegfarenda á Austurlandi. Einnig fá upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og svæða, sem síðar nýtast við almenna áætlanagerð. Framkvæmd umferðarkönnunarinnar var með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstaðnum, voru stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

Í janúar 2008 kynnti Vegagerðin drög að tillögu að matsáætlun, vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda á Axarvegi milli Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar í Berufirði. Við frekari undirbúning framkvæmdarinnar var ákveðið að meta saman umhverfisáhrif Axarvegar, Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar um botn Berufjarðar. Ákvörðunin var tekin í samráði við Skipulagsstofnun.

Fyrirhugað er að endurbyggja Hringveg í Skriðdal á 6 km löngum kafla, byggja 19-21 km langan nýjan veg yfir Öxi milli Hringvegar í Skriðdal og Hringvegar í Berufirði, endurbyggja og byggja nýjan Hringveg um botn Berufjarðar á 7 km löngum kafla og byggja nýja brú yfir Berufjarðará.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austurlandi, auka umferðaröryggi og draga úr slysahættu. Framkvæmd á Axarvegi er samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar í júlí 2007 sem mótvægisaðgerð vegna skerðingar á þorskkvóta og eru fjárveitingar til framkvæmda á árunum 2009-2011.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica