Júlí
Hornfirðingar fjölmennum!
Svo virðist sem margir hugsi sér til hreyfings um verslunarmannahelgina. Það er ekki nokkur vafi að 11. Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið er í Þorlákshöfn er einn af stærstu viðburðum þessarar helgar. Það er ekki nóg með að þarna sé fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna heldur er hún líka ókeypis, það eru einungis keppendur sem greiða þátttökugjald en annað er frítt, s.s. tjaldstæði. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins ulm.is og á síðunni usu.is. Stjórn USÚ hvetur Hornfirðinga alla til að fjölmenna í Þorlákshöfn og taka þátt í fjölbreyttri skemmtun og keppni.





Skrifa athugasemd