Ágúst
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2004
Flugeldasýning Jökulsárlóni 2004
Flugeldasýning Jökulsárlóni (úr myndasafni)

08.08.2008 Ágúst

Flugeldasýningin á Jökulsárlóni verður um helgina

Hin árlega flugeldasýning að Jökulsárlóni verður haldin annað kvöld þ.e. laugarskvöldið og hefst sýningin á miðnætti. Að sögn Einars Björns Einarssonar staðarhaldara þá verður sýningin í ár með svipuðum hætti og undanfarin ár. Flugeldum er skotið upp af jökum vítt og bereitt um lónið og við það skartar það sínu fegursta. Aðgangseyrir að sýningunni er kr.1000 fyrir fullorðna en frítt fyrir krakka. Allur ágóði af sýningunni rennur óskiptur til Björgunarfélags Hornafjarðar. Búist er við miklum fjölda gesta á sýninguna og vill Einar Björn beina því til þeirra sem ætla að koma að mæta tímanlega á svæðið því umferð getur orðið þung. Eins vill hann beina því til ökumanna að slökkva bílljósum þegar búið er að leggja bílnum á svæðinu.

Veitingarsalan verður opin á svæðinu þar sem til sölu verður kaffi, drykkir og samlokur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica