Ágúst
Kvoldsigling_um_Hornafjord._016
Kvoldsigling_um_Hornafjord._016
Kvoldsigling_um_Hornafjord._016
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

22.08.2008 Ágúst

Siglt var um Skarðsfjörðinn

Síðasta ferð sem Ferðafélagið fór í var kvöldsigling um Hornafjörð með Fjöruferðum. Farnar voru tvær ferðir í frábæru veðri undir leiðsögn Bjartmars Ágústssonar. Siglt var um Austurfjörðinn með viðkomu í Borgey, þar sem allir skriðu í gegn um hellinn eða göngin sem þar eru, einnig fræddi Bjartmar okkur ferðafélagana um helstu eyjar og sker á svæðinu og sagði frá því af hverju Kerlingarey bæri það nafn. En sjón er sögu ríkari í þeim efnum. Alls fóru 28 í þessa ferð og viljum við í Ferðafélaginu þakka þeim fyrir þátttökuna. Einnig viljum við koma á framfæri þökkum til þeirra Bjartmars, Óskars og Hauks hjá Fjöruferðum fyrir samstarfið.

Að lokum viljum við minna á næstu ferð sem er á morgun laugardaginn 23. ágúst þar sem farið verður Starmýradalur í Álftafirði yfir í Bæjardal í Lóni sem er dagsferð. Ferðin verður undir leiðsögn Guðmundar Eiríkssonar. Lagt verður af stað frá tjaldstæðinu kl 9.00. Verð 1000 fyrir fullorðna, frítt fyrir 16 ára og yngri. Skráning og nánari upplýsingar veita Magga í síma 4788948/8687624 og Ragna í 4781738/6625074

- Magga

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica