VolksWagen bílalest fyrir utan Ásgarð
Það voru fimm bílaflutningavörubílar hlaðnir af Volkswagen ökutækjum fyrir framan Gistiheimilið Ásgarð í gærmorgun og vakti það mikla athygli bæjarbúa. Á visir.is í dag kemur fram að bílarnir voru fluttir til landsins vegna stærstu bílasýningar sem haldin hefur verið hér á landi n.k. september. Þá verður sjötta kynslóð VW Golf heimsfrumsýnd á Íslandi og stendur Volkswagen fyrir kynningarátaki í þrjár vikur Eru u.þ.b. 1500 blaðamenn væntanlegir til landsins vegna þessa. Blaðamennirnir sem hingað koma verða í 80 manna hópum og staldrar hver hópur hér við í tvo daga. Komið verður upp fræðslu- og sýningaraðstöðu í Bláfjöllum og þaðan verður farið í reynsluakstur á nýju bílunum um næsta nágrenni, að Gullfossi og Geysi, Kerinu, Nesjavöllum og Bláa lóninu.
Allir helstur stjórnendur VW verða viðstaddir og verða alls um 200 bílar fluttir til landsins, þar af rúmlega 100 sjöttu kynslóðar VW Golf, en líka VW Pheaton lúxusbílar, VW Touareg jeppar og VW Passat R36 ásamt fleiri gerðum Volkswagen
"Við hlökkum mikið til að taka þátt í þessu ævintýri og höfum undanfarna mánuði unnið að þessu verkefni ásamt fjölmörgum innlendum aðilum." segir Sverrir Viðar Hauksson, framkvæmdastjóri bílasviðs Heklu.





Skrifa athugasemd