Desember
Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó
Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó
Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó

07.12.2008 Desember

Jólaglaðningur frá Kiwanisklúbbnum Ós og Nettó

Félagsþjónustu Hornafjarðar barst 6. des. 200 þúsund kr. gjafabréf á matarúttekt í Nettó. Gefendurnir voru Kiwanisklúbburinn Ós sem gaf 150 þúsund og Nettó bætti 50 þús. við gjöf þeirra Ós-félaga. Gestur Halldórsson forseti Óss tók við gjafabréfinu ásamt Miralem Haseta gjalkera Óss. Mánudaginn 8. desember afhendir forseti svo Jóni félagsmálafulltrúa þessi gjafabréf með von um að þessu verði skipt milli nokkura heimila og yrði þetta kærkominn glaðningur fyrir jólin því í okkar litla bæjarfélagi eru vissulega til heimili sem eru hjálpar þurfi.

Meðal fjáröflunarleiða Kiwanisklúbbsins er sala á jólatrjám og er þessi gjöf ágóði hennar, einnig selja þeir úrvals lakkrískonfekt framleitt hjá sælgætisgerðinni Freyju hér á Höfn.
Jólatréin sem seld eru hér núna eru úr skógræktinni í Haukafelli nema Norðmannsþinururinn sem fluttur er inn frá Danmörku.
Félagar í Kiwanisklúbbnum eru 21.

Óskum við hjá Kiwanesklubbnum Ós öllum A-Skaftfellingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári

Gestur Halldórsson.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica