Hornfirðingar í Útsvari í kvöld
Í kvöld keppa Hornfirðingar á móti Hafnfirðingum í Útsvari í Sjónvarpinu. Mikill hugur er í okkar fólki og þau staðráðin í að gera sitt besta en um leið að hafa gaman af. Eins og allir vita eru fulltrúar okkar í keppninni mikið úrvalsfólk og vel að sér í ólíklegustu málum. Þau hittast í dag og ráða ráðum sínum, Þórgunnur hefur séð um hlaupin enda frá á fæti, Kristín hefur sýnt ótrúlega leikhæfileika og Siggi, með sinni stóísku ró ? virðist vita svörin við flestum spurningum lífsins. Þetta er einvala lið og sama hvernig úrslitin verða erum við stolt af okkar góða fólki.
Við hér á Menningarmiðstöðinni sendum þeim Kristínu, Þórgunni og Sigga okkar bestu kveðjur og höfum ákveðið að hafa opið hús í Nýheimum í kvöld, þar sem bæjarbúar geta komið saman og horft á keppnina. Húsið opnar klukkan 20:00 og við hvetjum alla til að mæta.





Skrifa athugasemd