Eldvarnarátak Slökkviliðs Hornafjarðar
Undanfarin ár hefur Slökkvilið Hornafjarðar farið í grunnskólana og leikskólana á sínu starfssvæði og verið með öfluga forvarnarkynningu. Þetta átak byrjaði í nóvember þar sem Landssamband slökkviliðsmanna ?og sjúkraflutningamanna auk styrktaraðila efna til slíkrar viku.
Slökkviliðsmennirnir okkar fara og halda kynningu fyrir börnin um eldvarnir á heimilum og sínum skóla þar sem farið er yfir reykskynjara, slökkvitæki og rýmingaráætlanir. Þessi árstími er tilvalinn því í hönd fer aðventan með allri sinni ljósadýrð. Það hefur verið okkar reynsla af þessari fræðslu að bestu eldvarnareftirlitsmennirnir séu krakkarnir sem fá þessa fræðslu, þau fara með upplýsingarnar inn á sín heimili, oft skapast góð umræða um þessi mál sem alltaf þarf að fara reglulega yfir.
Fyrir okkur slökkviliðsmenn er þessi tími mjög skemmtilegur og gefandi fyrir okkar ágæta starf. Hluti af þessari forvarnaviku er að við förum í grunnskólana og höfum rýmingaræfingu þar sem við rýmum skólann með því að setja brunabjöllurnar í gang. Þannig æfum við nemendur og starfsfólk við fyrstu viðbrögðum ef upp kemur vá í skólanum, allir þurfa að þekkja sitt hlutverk, búið er að ákveða fyrirfram talningarstað þar sem hver bekkur safnast saman í beina röð. Stafsmenn telja nemendur sína og koma þeim skilaboðum til slökkviliðsins þegar það kemur á staðinn, ef einhverjir skila sér ekki þarf að gera ráðstafanir til að finna þá og því er nauðsynlegt að tilkynna til skólans ef um forföll er um að ræða. Í morgun, 12.des., fórum við í Nesjakóla og héldum rýmingaræfingu þar. Slökkviliðsmenn fóru inn í hverja skólastofu og kynntu fyrir nemendum hvað væri um að vera og má segja að hver nemandi hafi staðið sig vel og sýnt hetjuskap því það getur oft skapast mikill hávaði í stórum og háværum brunabjöllum. Auk þessa erum við með verkefni sem heitir ? Logi og Glóð? í leikskólunum. Verkefnið snýst um að gera nemendur virka og sýnilega við eldvarnareftirlit, farið er yfir alla brunaþætti skólans eins og reykskynjara, slökkvitæki, björgunarop og ruslasöfnun svo eitthvað sé nefnt. Nemendur koma í heimsókn á slökkvistöðina okkar og fá að skoða tækjabúnað og bíla. Oft förum í reykköfunarbúningana okkar til að sýna hvernig þeir virka en þessi búnaður er oft illa lyktandi af reykjarlykt.
Það er mat okkar slökkviliðsmanna að öll forvarnarfræðsla skili sér á endanum. Við erum búnir að halda nokkur námskeið fyrir stærri fyrirtæki þar sem farið er yfir búnað fyrirtækja, brunahólfanir, fyrstu viðbrögð við eldi og þróun innanhússbruna. Námskeiðinu lýkur svo með verklegri æfingu á slökkvistöðinni þar sem fólk fær að slökkva eld með handslökkvitækjum og eld í olíufeiti í potti á eldavél með eldvarnateppi.
Að lokum vill ég biðja ykkur um að bera virðingu fyrir jólaskreytingunum og fara varlega með eld um hátíðarnar.
Gleðileg Jól.
Borgþór Freysteinsson Eldvarnaeftirlitið Slökkvilið Hornafjarðar.





Skrifa athugasemd