Sigrún Ólafsdóttir hlaut tvenn verðlaun fyrir doktorsritgerð sína
Sigrún Ólafsdóttir, doktor í félagsfræði, sem starfar nú sem lektor í félagsfræði við Boston háskóla hlaut tvenn verðlaun fyrir doktorsritgerð sína árið 2008. Hún hlaut Esther L. Kinsley Doktorsverðlaunin frá Indiana University, en þau verðlaun eru veitt fyrir bestu doktorsritgerðina sem er skrifuð við skólann á hverju ári, óháð því fagi sem hún er skrifuð í. Verðlaunin voru veitt í Bloomington, Indiana í apríl 2008. Hún hlaut einnig verðlaun frá félagi bandarískra félagsfræðinga (American Sociological Association) en ritgerð hennar var valin besta ritgerð skrifuð á sviði geðheilsufélagsfræði það árið.
Þessi verðlaun voru veitt á árlegri ráðstefnu félagsins sem að þessu sinni var haldin í Boston, Massachusetts. Í ritgerðinni fjallar Sigrún um hvernig og hvers vegna geðræn vandamál hafa verið sjúkdómsvædd í vestrænum samfélgum síðan 1960. Niðurstöður hennar sýna að alþjóðlegar hugmyndir skipta máli varðandi það hvernig einstaklingar og samfélög bregðast við geðrænum vandmálum, en þessar hugmyndir verða fyrir sterkum áhrifum frá hugmyndum þess velferðarsamfélags sem er ríkandi í hverju landi. Þannig hefur sjúkdómsvæðing á geðrænum vandamálum átt sér stað á Íslandi, meðal annars vegna áhrifa hins læknisfræðilega hugsunarháttar, en hugmyndir og stefnumótun í geðheilbrigðismálum á Íslandi er engu að síður sterkt tengd hugmyndafræði okkar velferðarkerfis, þar sem áhersla er lögð á samábyrgð og samstöðu.





Skrifa athugasemd