Febrúar
DSCF9941
DSCF9941
DSCF9941
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

03.02.2009 Febrúar

Fjögur USÚ met í frjálsíþróttum sl. helgi

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss, 15 - 22 ára

 


Þau fimm ungmenni í frjálsíþróttum sem kepptu fyrir hönd USÚ stóðu fyrir sínu um helgina 31. jan. - 1. feb. í Reykjavík þegar þau tóku þátt í Meistaramóti Íslands 15-22 ára, 1 gull, 2 silfur og 1 brons!
Sveinbjörg Zophoníasdóttir landaði 1 Íslandsmeistaratitli, í þrístökki, 17-18  ára er hún stökk 10.88 m og sett þar með glæsilegt USÚ met en gamla metið hennar var 10.52 m. Hún vann einnig silfur í langstökki og setti USÚ met þar líka er hún stökk 5.39 m en gamla metið hennar var 5.25 m. Síðan varð hún í 5. sæti í 60 m hlaupi og sett þar einnig nýtt USÚ met, hljóp á tímanum 8.40 sek. en gamla metið hennar var 8.53 sek. Það er greinilegt að Sveinbjörg er komin í flokk fremstu frjálsíþróttakvenna á landinu, hún er á yngra ári í flokki 17-18 ára sem hún keppir í núna og má teljast mjög góður árangur að vera svona framarlega í öllum greinum sem hún tók þátt í.

Jón Snorri Þosteinsson gerði sér lítið fyrir og kastaði 5,5 kg kúlunni 11.98 m og varð í 2. sæti og bætti einng gamla innanhússmet USÚ sem hann átti og var 11.34 m. Jón er greinilega í fremstu röð kastara í sínum aldursflokki á Íslandi.

Fannar Blær Egilsson hljóp 800 m á tímanum 2.10.97 sek. og lenti í 3. sæti sem telst  góður árangur þó hann væri talsvert frá sínum besta tíma utanhúss sem er 2.06.44 sek. Hann er líka á yngra ári í 17-18 ára flokki. Fannar stökk síðan hástökk og varð í 4. sæti, stökk 1.68 m. Fannar hefur verið að glíma við meiðsli i hnjám en nú er það allt að koma hjá honum og eigum við væntanlega eftir að sjá hann vinna góð afrek í framtíðinni.

Einnig keppti Örvar Guðnason á mótinu og stóð sig vel. Örvar var mjög nálægt USÚ meti Bjarna Malmquist í langstökki en það er 5.68 en Örvar stökk 5.58 og hafnaði í 5. sæti. Hann keppti líka í þrístökki og varð 5. Svo bætti hann sinn besta árangur í hástökki þegar hann stökk 1.65 m. Örvar er mjög mikið efni í góðan stökkvara og æfir vel og eru framfarir hans því stórstígar.

Björn Ármann Jónsson varð síðan 6. í kúluvarpi (5.5 kg) og kastaði 9.75 m. Þetta er fyrra árið sem hann er að kasta þessari þyngd af kúlu og er sem sagt á fyrra ári í flokknum 17-18 ára eins og Fannar og Sveinbjörg.
Svo má geta þess að Bjarni Malmquist frá Jaðri í Suðursveit var þátttakandi á mótinu og keppir fyrir hönd Fjölnis. Hann keppir í flokki 19-22 ára og vann til 3 gullverðlauna og 1 brons á mótinu.  Bjarni er með bestu frjálsíþróttamönnum landsins og er í landsliðinu.

Um næstu helgi er svo Meisaramót Íslands (aðalhluti) og þangað fara væntalega nokkrir keppendur frá USÚ.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica