Febrúar
Hópreið um svæðið
Hestamannafélagið Hornfirðingur
Hópreið  (úr myndasafni)

06.02.2009 Febrúar

Ístölt á Óslandstjörn um helgina

Nú um helgina þ.e sunnudag inn 8. febrúar verða Vetrarleikar hestamannafélagsins Hornfirðings haldnir á Óslandstjörn og hefjast kl.13.30.

Þetta er 1. mót vetrararins af þrem, veðurspáin er góð og ísinn og umhverfið eins og best verður á kosið . Pálmi Guðmundsson segir að það fari eftir mætingu hvað margar keppnisgreinar verði teknar en vonandi sjái sem flestir hestamenn sér færi að mæta með gæðinga sína  og að áhorfendur geti notið útiverunnar í Óslandinu. Þar sem búast má við frekar svölu veðri verða félagskonur með heitt kakó og kex sem þær selja á vægu verði.

Keppt verður bæði í flokkum barna og fullorðinna og að sjálfsögðu verður ístöltinu gerð góð skil á flottum ís Óslandstjarnar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica