Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Á fjölmennum fundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sem haldinn var 7. febrúar síðastliðinn í Eldborg við Svartsengi, var ákveðið að efna til prófkjörs fyrir alþingiskosningarnar sem haldnar verða nú í vor. Kosin var kjörnefnd sem skipuð er fulltrúum allra félaganna í kjördæminu. Fyrir hönd Austur-Skaftafellssýslu sitja í nefndinni Vignir Júlíusson og Björn Ingi Jónsson. Þeir flokksmenn í Austur-Skaftfellssýslu sem áhuga hafa á að gefa kost á sér í komandi prófkjöri eru hvattir til að hafa samband. Framboðsfrestur er til 27. febrúar og prófkjörsdagur verður 14. mars.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðsfrests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu.
b) Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í alþingiskosningunum. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en sex.
Nánari upplýsingar um prófkjörið er hægt að fá hjá Skapta Erni Ólafssyni, framkvæmdastjóra kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, í síma 899-2200 eða með því að senda tölvupóst á netfangið skapti@xd.is
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu æviágripi á tölvutæku formi, á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 27. febrúar 2009.





Skrifa athugasemd