Minni umferð, minni hraði
Umferð á hringveginum á Austur-og Suðusturlandi í janúar og febrúar sl. hefur dregist saman um 25,9% miðað við sama tíma í fyrra. Ef miðað er við talningarstaðinn hér í sýslunni sem er við Hvalnes er umferð þar 8,3% minni en fyrir ári. Ekki er ófærð hér um að kenna því færð hefur verið góð að undanskilinni nokkurri hálku og veður yfirleitt hagstætt til ferðalaga. Að sögn lögreglunnar á Höfn hefur lítið verið að gera í umferðareftirliti í vetur og áberandi hvað ökuhraði er minni en áður. Að frátöldu umferðarslysinu á Breiðamerkursandi um helgina hafa aðeins minniháttar umferðaróhöpp orðið hér í nágrenni Hafnar.
Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á von á að heldur dragist saman hjá lögreglunni hér þar sem um 30% niðurskurður er framundan hjá lögregluembættinu á Eskifirði sem Hornafjarðarlögregla tilheyrir, ekki verði þó fækkað mannskap en reynt að hagræða í rekstrinum. Fjórir lögreglumenn eru starfandi á Höfn og ekki líkur á að ráðið verði í afleysingar fyrir sumarið heldur reynt að hagræða á vöktum sem Sigurður segir að sé engan veginn viðunandi yfir ferðamannatímann.
Til gamans skal þess getið að starfsmenn Áhaldahúss bæjarins hafa aldrei þurft að skafa snjó á götum bæjarins í vetur en nokkuð hefur verið um hálkuvarnir á götum og gangstéttum.





Skrifa athugasemd