Góð ráð eru gulls ígildi
Nú þegar við þurfum að gæta vel að útgjöldum heimilanna og finna út hvernig við getum best nýtt það sem við höfum er gott að geta leitað til þeirra sem hafa mikla þekkingu og reynslu og má þar benda á Leiðbeiningastöð heimilanna. Það er gott að leita til starfsfólks stöðvarinnar og þar stendur ekki á góðum ráðleggingum um nánast allt sem lítur að venjulegu heimilishaldi.
Í vetur, sér í lagi fyrir jólin, hefur þeim fjölgað mikið sem leita til Leiðbeiningastöðvar heimilanna sem er upplýsingamiðlun til heimila um flest það sem að heimilishaldi tilheyrir. Leiðbeiningastöðin sem tók til starfa 1963 er rekin af Kvenfélagasambandi Íslands og er forstöðumaður hennar Eygló Guðjónsdóttir. Leiðbeiningastöðin er opin öllum hvar sem er á landinu og hægt að hafa samband á lh@leidbeiningastod.is. Eygló segir auðfundið að heimilishald sé farið að breytast nú þegar kreppir að og fjárráð minnka, t.d. mikið meira er bakað heima og þá skiptir máli að gera það sem hagkvæmast. Margir leita ráða varðandi brauðbakstur, hentugar uppskriftir og matargerð.
Hjá Leiðbeiningastöðinni er veittar upplýsingar um bakstur, matreiðslu, veisluundirbúning og hvað mikið magn þarf pr. mann ásamt sérhæfðum uppskriftum fyrir þá sem þess þurfa.
Einnig er þar að fá upplýsingar um meðferð matvæla, geymsluþol og hreinlæti við meðhöndlun hráefnis og fullunnar matvöru. Þetta er aðeins smá sýnishorn af þeim fróðleik og aðstoð sem við getum sótt til kvennanna í Leiðbeiningastöð heimilanna þar er þjónustan öllum opin endurgjaldslaust og til að fá nánari upplýsinga er bara að fara inn á leidbeiningastod.is eða taka upp símann og hringja í síma 552 1135





Skrifa athugasemd