FAS í samstarf við pólskan framhaldsskóla
Síðastliðinn október var haldin ráðstefna í Gdansk í Póllandi þar sem markmiðið var að kynna möguleika á samstarfi á milli EFTA ríkjanna og Póllands. Á ráðstefnunni komst á samband á milli FAS og framhaldsskólans Zespół Szkół Nr 2 im. Eugeniusza Kwiatkowskiego í bænum Dębica sem er í suðaustur Póllandi, nánar tiltekið austur af Kraków. Í framhaldinu var sótt um styrk til nemendaskipta.
Í síðustu viku kom svo svar um að umsókn um verkefnið hefði verið samþykkt. Ætlunin er að byrja lítillega á verkefninu á yfirstandandi önn en meginþungi verkefnisins verður á næsta skólaári. Gert er ráð fyrir að Pólverjarnir komi í heimsókn til FAS í haust en FASarar færu út í mars á næsta ári. Auk heimsóknanna yrði unnið að margvíslegum verkefnum sem yrðu birt á heimasíðu verkefnisins. Má þar sem dæmi nefna kynningu á löndunum báðum, sögu þeirra og menningu.
Verður spennandi að fylgjast með framvindu þessa verkefnis.





Skrifa athugasemd