Vinnur að Matreiðslubók úr héraði
Halldór Halldórsson yfirmatreiðslumaður á Hótel Höfn vinnur þessa dagana að matreiðslubók. Hráefni af svæðinu mun verða í aðalhlutverki í hverri uppskrift ásamt því að notast verður við það sem heimurinn hefur uppá að bjóða. Meðal annars munu einhverjir réttir verða innblásnir af ferðalagi sem Halldór fór í til Asíu.
Halldór fylgir hráefninu gjarnan eftir frá upphafi þangað til það er komið á diskinn, þannig tók hann til dæmis þátt í álaveiðum, undirbúningu á reykingu og fékk að fylgjast með þeim félögum Ara Lú og Gústa Þorbjörns við vinnuna. Halldór vinnur svo uppskriftir úr hráefninu.
Hugmyndina að bókinni hefur hann gengið með í maganum í um þrjú ár en vinnan við hana hófst fyrir um einu og hálfu ári síðan.
"Þetta gengur ágætlega" segir Halldór og bætir við að þetta taki lengri tíma en hann hélt og það verður að vanda til verksins. "Ég hef verið í samvinnu við fólk á staðnum sem hefur tekið vel í að hjálpa mér með þetta verkefni og svo eru aðrir sem hafa gefið mér vilyrði fyrir aðstoð þegar að bókin er lengra komin"
Halldór stefnir að því að bókin komi út fyrir næstu jól.





Skrifa athugasemd