Fjallamenning í Ríki Vatnajökuls
Fjallamennskuverkefni
Nú er lagt kapp á að kynna þá fjölbreyttu afþreyingu sem er í boði yfir vetrarmánuðina hér í Sveitarfélaginu Hornafirði og skapa enn meiri fjölbreytni og eru margir sem þar koma að í samstarfi við Ríki Vatnajökuls.
Fjallamennskuverkefnið Fjallamenning í Ríki Vatnajökuls er verkefni sem nær yfir allt sveitafélagið Hornafjörð segir Rósa Björk Halldórsdóttir. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem fóru af stað eftir ráðstefnuna sem haldin var í haust um Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem sveitarfélagið og Háskólasetrið stóð að ásamt Ríki Vatnajökuls. Þar voru settir upp vinnuhópar sem áttu að skipta með sér verkefnum eins og að skilgreina vetrarferðamennsku, einnig var vinnuhópur sem fjallaði um fjallamennsku og útivist og fjölluðu hóparnir um þau tækifæri sem nýtast í Vatnajökulsþjóðgarði.
Hjalti Þór bæjarstjóri greip boltann á lofti og sá hversu mikil tækifæri fælust í hugmyndunum um fjallamennsku hér og hóaði saman á fund og nú er kominn af stað verkefnahópur sem Ríki Vatnajökuls stýrir. Þar eru Einar Rúnar hjá Öræfaferðum, Einar Torfi hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Sandra Björg hjá Háskólasetrinu í stóru hlutverki.
Hugmyndin er að gera Ríki Vatnajökuls að eitt af eftirsóknarverðustu svæðunum til fjalla- og jöklaferða í norðurhluta Evrópu. Svæðið býr yfir mikill sérstöðu með Vatnajökul sem stærsta jökul utan heimskautanna og há fjöll sem svipar nokkuð til evrópsku Alpanna.
Hefur verið fundað með landeigendum til að koma þeim inn í verkefnið, þetta snýst ekki bara um ferðaþjónustu heldur gæti verkefnið haft áhrif sem byggðamál því að ef þessar hugmyndir sem eru tengdar þessu fjallaverkefni verða að veruleika þá gæti það verið mikilvægt til að styrkja búsetu og byggja upp atvinnutækifæri í dreifbýlinu í Öræfum, Suðursveit, Mýrum og Lóni, ef fólk sér tækifærin í þessu og nýtir sér þau.
Hugmyndin er að setja upp Fjallasetur eða miðstöð sem verður jafnframt fjalla og útivistarskóli og FAS stefnir að því að koma þessu námi inn í Framhaldsskólann.
Verkefnastjórnin vinnur nú að því að safna upplýsingum og leiðarvísum um gönguleiðir og er verið að kortleggja þau svæði sem þegar eru notuð fyrir fjallamennsku - þau eru alltaf að verða vinsælli, þá fer mest fyrir svæðum í Öræfunum eins og leiðin á Hvannadalshnúk. Það er ekki bara þetta fjallasvæði í vestanverðri sýslunni sem er vannýtt paradís heldur teygir þessi kortlagning sig inn í Lón.
Lónið er í heild sinni alveg dásamlegt svæði, Stafafellsfjöll og Lónsöræfi gætu t.d. verið griðland göngumannsins. Vestra-og Eystrahorn eru hentug fyrir klifur og svona er hægt að halda áfram. Það þarf að lista upp og kortleggja þessi svæði þannig að upplýsingar séu til um hvað hvert tiltekið svæði hafi uppá að bjóða til fjalla og jöklaferða og þá sé einnig tekið tillit til hvers konar fjallamennska hentar hvar og þolmörk hvers svæðis fyrir sig, hvort bæta þurfi aðgengi og aðstöðu og fleira.
Eru heimamenn hvattir og ekki síst unga fólkið til að stunda meira útivisti og kynnast þeim lífsstíl og fjölbreyttu tækifærum sem fjallamennska hér býður upp á með jökullinn og þessi háu fjöll sem að við höfum nánast í bakgarðinum. Til að ýta aðeins við fólki þá er FAS að fara af stað með verkefni í samstarfi við Ríki Vatnajökuls og afþreyingaraðila á svæðinu þar sem nemendum verður boðið að kynna sér það sem er í boði. Fyrsta ferðin verður líklega í apríl, þá verður farið með Einari og Aroni í Hofsnesi í kajakaferð og einnig verður farið á Suðurfjörur með Fjöruferðum. Með þessu erum við að hvetja fólk til að kynnast sínu nánasta umhverfi, vera úti í náttúrunni og njóta heilbrigðs lífsmáta segir Rósa, sem á eftir að upplýsa okkur miklu meira um það sem verið er að gera í Ríki Vatnajökuls.





Skrifa athugasemd