Leikskólinn Lönguhólum fór í útskriftarferð í Suðursveit
Þriðjudaginn 5. maí fór útskriftarhópur leikskólans Lönguhóla í útskriftarferð í Suðursveit. Nemendurnir gistu eina nótt í Hrollaugsstöðum.
Farið var af stað frá Lönguhólum kl 13.00 á þriðjudeginum, í ferðinni var farið í Þórbergssetur, fjallgöngu, Kálfafellskirkja skoðuð, farið í fjárhúsin á Jaðri, kvöldgöngu, spilað bingó, farið í Singstar, bökuð pitsa og fleira. Það var þreyttur en ánægður hópur sem kom svo til baka að Lönguhólum kl 16.00 á miðvikudeginum.
Föstudaginn 15. maí kl. 10.00 til 16.00 verður ljósmyndasýning á Lönguhólum, öllum sem áhuga hafa á starfi skólans er velkomið að koma og sjá hjá okkur myndir úr vetrarstarfinu.
Kveðja frá leikskólanum Lönguhólum.





Skrifa athugasemd