Hornafjarðarhumarinn kominn á lopapeysur
Sólveig Ýr á allan heiðurinn af þessari hönnun og munstrin verða eign Handraðans og eingöngu notuð innan hans
Handraðinn, félag hannyrðafólks á Hornafirði, fékk styrk í vetur frá atvinnumálanefnd úr Atvinnu- og rannsóknarsjóði sem settur var á laggirnar vegna þorskaflaskerðingar. Styrkurinn sem Handraðinn fékk, 150 þús.kr, er ætlaður til hönnunar á eigin prjónamunstrum sem tengjast einhverjum séreinkennum staðarins og á að nota munstrin í peysur, húfur, vettlinga, sokka o.fl.
Kolbrún Jónsdóttir, ein þeirra mörgu sem standa að Handraðanum, segir að mikið hafi verið rætt um hönnun munstra sem uppfylltu þessar kröfur en lengra var það ekki komið þegar Sólveig Ýr dóttir hennar kom til hennar með blað sem á var vel útfærð humarteikning og spurði hvort hún gæti notað þetta. Í ljós kom að þarna var komin lausnin á munsturmálinu og nú hefur Kolbrún prjónað 3 peysur og nokkrar húfur og hefur Sólveig tekið fullan þátt í að útfæra munstrin með mömmu sinni. Sólveig samþykkti að Handraðinn fengi munstrin til afnota en með því skilyrði að afi hennar (Ágúst Þorbjörnsson) fengi fyrstu peysuna.
Sólveig Ýr verður 12 ára í september og meðal þess sem hún lærir í skólanum er nýsköpun sem hefur komið henni vel við hönnun og útfærslu humarmunstursins. Sólveig hefur mikinn áhuga á handavinnu og ekki síst að prjóna en á því byrjaði hún fyrir tveim árum.
Sólveig á allan heiðurinn af þessari hönnun og munstrin verða eign Handraðans og eingöngu notuð innan hans. Stefnt er á að ullarfatnaður með humarmunstri verði sem fjölbreyttastur og nú munu prjónakonur keppast við að framleiða peysur, húfur og fleira til sölu á humarhátíðinni. Humarflíkurnar verða unnar úr íslenska plötulopanum.
Kolbrún segir það slæmt að börnin skuli ekki fá tækifæri til að vinna með eldra fólki og læra af því hannyrðir og annað sem óðum er að hverfa því þetta fólk býr yfir ótæmandi fróðleik og málshátturinn ,,Ungur nemur gamall temur´´ er í fullu gildi og við ættum að huga að því áður en það verður of seint.
Brynjúlfur Brynjólfsson í Handraðanum segir að Sólveigu verði veitt góð viðurkenning fyrir hönnun hennar og nafn hennar sem hönnuðar verður að sjálfsögðu á munsturuppskriftunum.




Skrifa athugasemd