Maí
Duglegur málari
Þegar fréttamaður vefsins var á ferð um bæinní gær svona til að sjá hvernig bæjarbúar nytu veðurblíðunnar vakti lágvaxinn málari sérstaka athygli ekki síst fyrir iðni við verk sitt og þar var verið að mála en ekki bara að leika sér. Málarinn heitir Anna Lára Grétarsdóttir er fjögurra ára og á heima á Smárabrautinni. Hún gaf sér aðeins tíma til að svara nokkrum forvitnisspurningum svo sem að hún væri að hjálpa pabba að mála og að þetta væri mjög gaman en það þyrfti að vanda sig svo allt yrði vel málað og fínt. Síðan hélt sú stutta áfram að mála og gáði vel að því að ekki yrðu neinir smáblettir eftir ómálaðir.




Skrifa athugasemd