Útskrift frá Framhaldsskóla A-Skaftafellssýslu
Laugard. 23. maí fór fram útskrift í Nýheimum. Að þessu sinnu útskrifuðust 19 nemendur, tólf stúdentar, einn af A stigi vélstjórnar, fjórir félagsliðar, einn sjúkraliði, einn stuðningsfulltrúi og einn leiðbeinandi í leikskóla.
Nýstúdentar eru: Assa Sólveig Jónsdóttir Hansen, Dagbjört Hlín Emilsdóttir, Elías Tjörvi Halldórsson, Ellen Alma Tryggvadóttir, Emil Örn Morávek, Friðrik Jónsson, Guðni Rúnar Jónsson, Herdís Kristrún Harðardóttir, Hörður Þórhallsson, Jóhann Bergur Kiesel, Nanna Halldóra Imsland og Ósk Sigurjónsdóttir. Dúx skólans að þessu sinni er Herdís Kristrún Harðardóttir en auk þess að ljúka stúdentsprófi útskrifast hún sem sjúkraliði.
Útskriftarnemendur verknámsbrauta vorið 2009. Af A stigi vélstjórnar útskrifast Smári Þór Sigurðsson. Alma Þórisdóttir, Júlía Geirsdóttir, Lovísa Bylgja Kristjánsdóttir og Steinunn Benediktsdóttir útskrifast sem félagsliðar. Gunnhildur Imsland útskrifast sem stuðningsfulltrúi og Júlía Þorsteinsdóttir útskrifast sem leiðbeinandi í leikskóla.
Sendum útskriftarnemendum öllum hamingjuóskir á þessum tímamótum.
fas.is/Hjördís





Skrifa athugasemd