Maí
Undirskrift samningsins við Hlyn Pálmason
Undirskrift samningsins við Hlyn Pálmason

27.05.2009 Maí

Hlynur Pálmason gerir kynningarmynd um sveitarfélagið

Bæjarráð Hornafjarðar samþykkti nýverið að gera samning við Hlyn Pálmason um að hann geri kynningarmynd um samfélag og ferðaþjónustu á Hornafirði. 

Verklok eru áætluð í janúar á næsta ári en efni myndarinnar á að lýsa hinu daglega lífi fólks á Hornafirði sem og afþreyingu og þjónustu við ferðamenn. Markmið með gerð myndbandsins er að auka við kynningarefni fyrir ferðaþjónustuna og eins að kynna samfélagið fyrir þeim sem áhuga hafa á því að flytja til Hornafjarðar.

Hlynur fékk nýlega inngöngu í kvikmyndaskóla í Danmörku sem er frábær árangur en skólinn er mjög eftirsóttur og erfitt að fá inngöngu

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica