Borð og listmunir úr fjörusandi
Hornfirðingurinn Jón Björnsson, uppalinn í Hlíðartúninu á Höfn, hefur vakið mikla athygli fyrir listaverk sem hann vinnur úr venjulegum dökkum íslenskum fjörusandi. Jón stundaði nám í iðnhönnun í Hollandi og útskrifaðist sl. haust. Hann hefur nú þegar tekið þátt í sýningum í New York, á Ítalíu, Kjarvalsstöðum og nýlega var hann beðinn um muni á sýningu sem verður í Smáranum í Kópavogi. Á Ítalíu sýnir Jón borðstofuborð sem er 170x90cm og gert úr fjörusandi. Það er útskriftarverkefni Jóns, er um 100 kg á þyngd, og hefur víða vakið athygli.
Jón hlaut nýlega styrk úr Hönnunarsjóði Áróru og segir hann að það geri honum kleift að vinna áfram með sand-blómavasana eins og þá sem sýndir eru á Kjarvalsstöðum og koma þeim á markað. Einnig þarf að breyta framleiðsluferlinuog nota trémót í stað einnota pappírsmóta. Jón er búinn að fá aðstöðu í Miklagarði og er að koma þar upp vinnu og framleiðsluaðstöðu og vonast hann til að geta opnað þar listverkasmiðjusína í byrjun júní.
Á heimasíðu Jóns, bjoss.com, er hægt að fræðast frekar um hönnun hans og verk.
Nánar verður sagt frá Jóni og starfsemi hans þegar hann opnar í Miklagarði en þar verður margt óvenjulegt að sjá og áhugamálin fjölbreytt og áhugaverð.





Skrifa athugasemd